Flísar fyrir veggi og gólf
Ertu að fara að flísaleggja? Hér finnur þú grunnupplýsingar um flísar, þar á meðal notkun, áferð, slitstyrk og hálkuvörn, svo þú getir tekið upplýsta ákvörðun áður en þú velur flísar.
Hvernig á að velja réttar flísar?
Val á réttum flísum fer eftir því hvar á að nota þær, hversu mikið álag þær þurfa að þola og hversu mikinn raka er að ræða.
Fyrir blaut rými eins og baðherbergi og eldhús: Flísar með hálkustuðul R10
Fyrir útisvæði og verönd: Frostþolnar flísar með hálkustuðul R11
Fyrir veggi og þurr rými: Veggflísar eða flísar með hálkustuðul R9
Fyrir fljóta og vatnshelda lausn án flísalagnar: Dumaplast gólf- og veggplötur
Þarftu ráðgjöf? Starfsfólk okkar hjálpar þér að finna réttu flísarnar, gólfplöturnar eða veggplöturnar fyrir þitt verkefni.
Gólf- og veggflísar
Í BYKO færðu gólfflísar frá þekktum gæðaframleiðendum frá Spáni, Ítalíu og Póllandi. Skoðaðu úrvalið hér að neðan.
Framkvæmdakjör
Félagar í BYKO Plús geta skráð sig í sérstök afsláttarkjör sem henta vel í almennum framkvæmdum eins og að skipta um gólfefni. Kjörin gilda í 3 mánuði í senn og hægt er að skrá sig tvisvar á ári.
Skráning í þessi afsláttarkjör fer fram á heimasvæði BYKO PLÚS inni á mitt.byko.is og gefa 25% afslátt af öllum flísum og baðplötum á tímabilinu.
Vörur fyrir flísalögn og þrif
Gólfflísar – slitsterkar og fjölhæfar
Gólfflísar frá BYKO eru að stærstum hluta postulínsflísar sem brenndar eru við hátt hitastig, sem gerir þær einstaklega þéttar, vatnsheldar og endingargóðar. Í BYKO færðu gólfflísar frá virtum ítölskum framleiðendum eins og Sintesi, Gruppo Romani og Unicom Starker, auk fjölbreytts úrvals frá pólska framleiðandanum Cersanit.
Helstu kostir gólfflísa eru mikið slitþol, auðvelt viðhald og gott þol gagnvart kulda og raka. Úrvalið nær frá klassískum 60x60 cm flísum í steinsteypu- og marmaraáferð upp í grófari, frostþolnar útiflísar sem henta vel utandyra, til dæmis á veröndum og stéttum.
Gólfflísar henta einstaklega vel í anddyri, eldhús og baðherbergi þar sem mikil umferð og raki krefjast endingargóðs efnis, og einnig utandyra þegar frostþolnar flísar með gott hálkuvarnargildi eru valdar.
Veggflísar – fjölbreytt útlit fyrir hvert rými
Veggflísar gefa baðherberginu, eldhúsinu eða þvottahúsinu persónulegan og vandaðan blæ. Í BYKO er úrvalið breitt, allt frá hvítum, glansandi og möttum grunnflísum frá Cersanit og Ceramicas Vilar Albaro upp í litríkar mósaíkflísar frá Intermatex.
Helstu kostir veggflísa eru að þær eru vatnsheldar, auðþrífanlegar og fást í ótal stærðum, litum og áferðum, allt frá klassískum subway-flísum til stórra 30x60 cm flísa sem gefa rýminu nútímalegt yfirbragð.
Veggflísar henta vel sem heilklæðning í sturtuklefa og á baðherbergisveggi, en einnig sem stílhrein blettaklæðning, til dæmis bak við eldhúsvask eða sem slitsterk klæðning bak við þvottavél og þurrkara í þvottahúsi.
Hálkustuðull flísa
Réttur hálkustuðull skiptir miklu máli fyrir öryggi, þægindi og notagildi flísa. Val á hálkuvörn fer eftir því í hvaða rými flísarnar eru notaðar og hversu mikil bleyta eða raki getur myndast. Hér fyrir neðan má sjá helsta muninn á R9, R10 og R11 hálkustuðlum.
Hálkustuðull R9
Flísar með hálkustuðulinn R9 henta vel innanhúss þar sem lítil eða engin bleyta er til staðar. Þær eru góðar í rými eins og svefnherbergi, stofur og á veggi, þar sem útlit og þægindi eru í forgrunni.
Skoðaðu allar flísar með R9 hálkuvörn hér
Hálkustuðull R10
Flísar með R10 hálkustuðli veita aukið grip og öryggi. Þær henta vel í rými þar sem getur myndast raki, en bleyta er ekki mikil. Tilvalið fyrir baðherbergi, eldhús, forstofur og þvottahús.
Skoðaðu allar flísar með R10 hálkuvörn hér
Hálkustuðull R11
Flísar með R11 eru með mikla hálkuvörn og grófari áferð. Þær eru hannaðar fyrir aðstæður þar sem öryggi skiptir höfuðmáli, t.d. í almenningsrýmum, á útisvæðum og í atvinnueldhúsum.
Skoðaðu allar flísar með R11 hálkuvörn hér
Útiflísar og pallakollar
Frábærar útiflísar frá Sintesi og lausn til að leggja þær niður.
Gólfplötur – fljótleg og vatnsheld lausn án flísalagnar
Dumaplast gólfplötur eru vatnsheldar PVC-plötur sem líkja fullkomlega eftir útliti flísa, steypu eða náttúrusteins, án þess að flísaleggja. Þær eru smellufestar eða límdar beint á gólfið, jafnvel ofan á eldra gólfefni.
Helstu kostir gólfplatna eru að uppsetning er fljótleg og hrein, engin fúga safnar óhreinindum og yfirborðið er höggþolið og auðvelt í þrifum, það nægir að þurrka af með rökum klút.
Gólfplötur henta sérstaklega vel þar sem framkvæmdatími er naumur, til dæmis í sumarhúsum, útleiguíbúðum og baðherbergjum sem á að klæða á einni helgi.
