BYKO PLÚS
BYKO PLÚS er fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga sem vilja fá aukinn ávinning af sínum viðskiptum við BYKO. Félagar klúbbsins safna punktum, sem við köllum BYKO krónur, sem hægt er að umbreyta í Vildarpunkta Icelandair eða inneign í BYKO.
Ásamt því fá félagar í BYKO PLÚS ýmis konar sértilboð og njóta sérstakra fríðinda.
Skráðu þig
Fyrir hverjar 25.000 kr. sem verslað er fyrir á fullu verði hjá BYKO safnast 1.500 BYKO krónur.
Hægt er að umbreyta BYKO krónum hvenær sem er í Vildarpunkta Icelandair eða inneign í BYKO í formi BYKO PLÚS inneignarkorts.
Þú færð sértilboð á vinsælum vörum í hverjum mánuði sem aðeins eru í boði fyrir skráða félaga.
Félagar geta skráð sig í sérstök afsláttarkjör sem henta vel í framkvæmdum.
Athugið: BYKO krónur safnast ekki við kaup á vörum sem þegar eru á afslætti.
Smelltu hér til að kynna þér skilmála.
Skráðu þig
Þú byrjar að safna BYKO krónum þegar þú verslar í fyrsta skipti eftir skráningu í BYKO PLÚS. Að lágmarki þarf að versla fyrir 25.000 kr. til að fá 1.500 BYKO krónur. Ef verslað er fyrir 50.000 kr. safnast 3.000 BYKO krónur o.s.frv.
Fyrir hverjar 25.000 kr. sem verslað er fyrir á fullu verði hjá BYKO safnast 1.500 BYKO krónur.
Hægt er að umbreyta BYKO krónum hvenær sem er í: 1.500 Vildarpunkta hjá Icelandair eða 1.500 kr. inneign á BYKO PLÚS rafrænu inneignarkorti.
Félagar fá sértilboð á vinsælum vörum í hverjum mánuði. Þessi tilboð eru aðeins í boði fyrir skráða félaga klúbbsins. Félagar fá aðgang að fríðindum sem öðrum stendur ekki til boða.
Skráðu þig
Félagar geta skráð sig í sérstök afsláttarkjör sem henta vel í framkvæmdum.
Skráning í þessi afsláttarkjör fer fram á heimasvæði BYKO PLÚS inni á mitt.byko.is. Þegar afsláttarkjör eins og Félagi í framkvæmdum eru virk, safnast ekki BYKO krónur af vörum sem eru innan þeirra kjara. Hins vegar safnast BYKO krónur áfram af öðrum vörum sem ekki eru á afslætti.
Skoða nánar
Vildarpunktar Icelandair gilda í 3+ ár skv. reglum Icelandair. BYKO krónur gilda í 1 ár* og BYKO PLÚS kort í 1 ár.
Ekkert hámark er á hversu mörgum BYKO krónum er hægt að safna. BYKO krónur safnast ekki við kaup á vörum sem þegar eru á afslætti.
*BYKO krónur renna út 12 mánuðum eftir söfnun.
Hvenær byrja ég að safna BYKO krónum?
Þú byrjar að safna BYKO krónum þegar þú verslar í fyrsta skipti eftir skráningu í BYKO PLÚS.
Hvernig safna ég BYKO krónum?
Með því að auðkenna þig með rafræna BYKO kortinu eða kennitölu í hvert skipti sem þú verslar í verslun eða með rafrænum skilríkjum í vefverslun BYKO.
Er eitthvað þak á því hversu mörgum BYKO krónum ég get safnað?
Nei, ekkert þak á krónusöfnun.
Er nóg að vera félagi í BYKO PLÚS til að fá Vildarpunkta Icelandair?
Nei þú þarft einnig að vera skráður félagi í Icelandair Saga Club til að umbreyta BYKO krónum í Vildarpunkta Icelandair.
Hvernig umbreyti ég BYKO krónum í Vildarpunkta Icelandair?
Þú getur umbreytt BYKO krónum hvenær sem er á heimasvæði BYKO PLÚS inn á mitt.byko.is. Það getur tekið allt að 48 klst að færa BYKO krónur yfir í Vildarpunkta Icelandair.
Hvernig umbreyti ég BYKO krónum í inneign?
Mjög einfalt. Þú velur þann valkost á heimasvæði BYKO PLÚS inni á mitt.byko.is og þá verður til rafrænt kort sem þú vistar í veskinu í símanum þínum.
Get ég notað BYKO krónurnar mínar til að greiða upp viðskiptareikning?
Nei bara er hægt að umbreyta BYKO krónum í Vildarpunkta Icelandair eða sem inneign á BYKO PLÚS rafrænu inneignarkorti.
Get ég gefið út BYKO PLÚS inneignarkort á hvaða aðila sem er?
Nei, inneignarkort BYKO PLÚS er tengt kennitölu félaga og er ekki framseljanlegt.
Ég er nú þegar með föst afsláttarkjör í BYKO. Bætast þau við kjör BYKO PLÚS klúbbsins?
Við skráningu í BYKO PLÚS falla öll föst afsláttakjör sem þú kannt að hafa hjá BYKO úr gildi.
Safna ég BYKO krónum á meðan ég er skráð/ur í Félaga í framkvæmdum eða Pallaafslátt?
Já en eingöngu af þeim vörum sem þú verslar á fullu verði. Þegar afsláttakjör eins og Pallaafsláttur eða Félagi í framkvæmdum eru virk, safnast ekki BYKO krónur af vörunum sem eru innan þeirra kjara.
Hvað ef ég hef skráð mig í Félaga í framkvæmdum, detta þau afsláttarkjör út?
Já, en þú getur skráð þig aftur inn á heimasvæði BYKO PLÚS
Get ég safnað bæði BYKO krónum og Vildarpunktum Icelandair ef kreditkortið mitt er tengt Icelandair Saga Club?
Já, BYKO krónur bætast ofan á þá Vildarpunkta sem þú færð með kreditkortinu þínu. Þú nýtur því tvöfalds ávinnings - BYKO krónur frá BYKO PLÚS og Vildarpunkta frá kreditkortinu.
Geta fyrirtæki og Félagasamtök verið meðlimir í BYKO PLÚS?
Nei, aðeins einstaklingar 18 ára og eldri.
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394