Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Ertu að leita að vönduðum ítölskum gólfflísum?

Ceramica Euro er ítalskur framleiðandi sem hefur sérhæft sig í postulínsflísum frá 1999. Verksmiðjan er staðsett í Castellarano, í hjarta ítalska flísahéraðsins á Norður-Ítalíu, þar sem áratuga hönnunarhefð og nýjasta framleiðslutækni koma saman. Í BYKO fæst vinsæla AREA-línan frá Ceramica Euro: gólf- og veggflísar með fágaðri steinsteypuáferð.

Kostir Ceramica Euro flísa

Nokkrar ástæður til að velja Ceramica Euro.

Kostir Ceramica Euro flísa

Vandaðar ítalskar postulínsflísar frá framleiðanda með margra ára reynslu af hönnun og framleiðslu
Frostþolnar og með góðri hálkuvörn (R9-R10), henta jafnt inni og úti
Fáanlegar í stærðunum 30x60cm og 60x60cm, auk samstæðra mósaíkflísa fyrir skemmtileg smáatriði
Steinsteypuáferð úr AREA-línunni gefur nútímalegt og hreinlegt yfirbragð
Umhverfisvottaðar flísar sem leyfðar eru í umhverfisvottuðum byggingum
Glerjað yfirborð sem er einfalt að þrífa og endist árum saman

Skoðaðu vinsælustu stærðirnar og áferðirnar frá Ceramica Euro í vöruúrvali okkar.

Sérpöntum flísar frá Ceramica Euro

Á þessari síðu sýnum við vinsælustu flísarnar frá Ceramica Euro sem við höfum á lager, en það er langt frá öllu því sem Ceramica Euro býður upp á. Við getum sérpantað hvaða flísar sem er úr vöruúrvali þeirra fyrir þig, skoðaðu allt úrvalið á heimasíðu þeirra og láttu okkur svo vita hvað þig vantar.

Smáatriðin skipta máli

Auk stóru gólfflísanna býður Ceramica Euro upp á samstæðar mósaíkflísar sem henta vel í sturtuklefa, á baðherbergisveggi eða sem skreytilistar. Þannig er auðvelt að skapa samræmt útlit frá gólfi til lofts með sömu áferð og lit.

Valmynd