Ertu að leita að klassískum veggflísum?
Ceramica Vilar Albaro (CVA) er spænskt flísafyrirtæki, stofnað 1995 og með höfuðstöðvar í Sant Joan de Moró í Castellón-héraði á Spáni. Fyrirtækið sérhæfir sig í litlum og meðalstórum veggflísum í klassísku subway-sniði, og í BYKO fást vinsælar veggflísar frá CVA í nokkrum stærðum og litum.
Kostir CVA veggflísa
Nokkrar ástæður til að velja veggflísar frá CVA.
Kostir CVA veggflísa
Skoðaðu vinsælar veggflísar frá Ceramica Vilar Albaro í vöruúrvali okkar.
Sérpöntum flísar frá CVA
Á þessari síðu sýnum við vinsælustu veggflísarnar frá Ceramica Vilar Albaro sem við höfum á lager, en það er langt frá öllu því sem CVA býður upp á. Við getum sérpantað hvaða flísar sem er úr vöruúrvali þeirra fyrir þig, skoðaðu allt úrvalið á heimasíðu þeirra og láttu okkur svo vita hvað þig vantar.
Klassískar veggflísar í mörgum sniðum
CVA sérhæfir sig í litlum og meðalstórum veggflísum og skiptir framleiðslu sinni í tvær megin línur, Pasta Blanca (hvítan leir) fyrir hreinar og fágaðar áferðir, og Pasta Roja (rauðan leir) fyrir hlýrri og náttúrulegri áferðir. Í BYKO fást meðal annars klassískar subway-flísar, litlar ferningsflísar og lengri Tokio-flísar, sem gefa eldhúsum og baðherbergjum tímalaust yfirbragð.