Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Ertu að leita að stílhreinum ítölskum flísum?

Sintesi er ítalskur flísaframleiðandi, stofnaður árið 1998, og eitt af vörumerkjum Gruppo Ceramiche Gresmalt sem hefur meira en 50 ára reynslu af framleiðslu postulínsflísa. Framleiðslan fer fram á Ítalíu, nánar tiltekið í Casalgrande og Sassuolo, tveimur af helstu flísaframleiðsluborgum landsins. Í BYKO fást flísar úr JUST og FLOW línum Sintesi, sem sameina nútímalega hönnun og endingargóða postulínsáferð.

Kostir Sintesi flísa

Nokkrar ástæður til að velja Sintesi.

Kostir Sintesi flísa

Ítalskar postulínsflísar, 100% framleiddar á Ítalíu af Sintesi, hluta af Gruppo Ceramiche Gresmalt
Fáanlegar í ýmsum stærðum, þykktum og áferðum, meðal annars í JUST, MUD og FLOW línunum
20mm þykkar útiflísar úr JUST-línunni sem henta á svalir, verandir og aðra fleti utandyra
Frostþolnar og með hálkuvörn (R10-R11), henta jafnt innandyra og utandyra
Umhverfisvottaðar flísar með uppruna- og rekjanleikavottun, leyfðar í umhverfisvottuðum byggingum
Glæsilegt, samræmt útlit sem hentar bæði íbúðarhúsnæði og fyrirtækjum

Skoðaðu vinsælustu stærðirnar og áferðirnar frá Sintesi í vöruúrvali okkar.

Sérpöntum flísar frá Sintesi

Á þessari síðu sýnum við vinsælustu flísarnar frá Sintesi sem við höfum á lager, en það er langt frá öllu því sem Sintesi býður upp á. Við getum sérpantað hvaða flísar sem er úr vöruúrvali þeirra fyrir þig, skoðaðu allt úrvalið á heimasíðu þeirra og láttu okkur svo vita hvað þig vantar.

JUST, Frammenti og Flow

Sintesi býður upp á fjölda safna sem henta mismunandi stílum og verkefnum. JUST er fjölhæf lína með sléttri, nútímalegri áferð sem fæst bæði fyrir innanhúss- og útinotkun. Frammenti sækir innblástur í náttúrulegt steinsteypu- og steinyfirborð, en Flow er með fágaðri, hálf-glansandi áferð sem gefur rólegt og heilsteypt yfirbragð. Skoðaðu bæklingana hér fyrir neðan til að fá nánari upplýsingar um hvert safn.

Valmynd