Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Ertu að leita að ítölskum flísum frá virtum framleiðanda?

Gruppo Romani er ítölsk flísasamstæða með rætur allt aftur til 1968, þegar Cavaliere Lamberto Romani stofnaði Ceramica Serenissima í Casalgrande di Reggio Emilia, í hjarta ítalska flísahéraðsins. Í dag heyra nokkur af öflugustu flísavörumerkjum Ítalíu undir samstæðuna, meðal annars Serenissima og Cercom, og eru flísar framleiddar í tveimur verksmiðjum á Ítalíu og fluttar út til yfir 90 landa. Í BYKO fást vinsælar flísar frá Serenissima og Cercom.

Kostir Gruppo Romani flísa

Nokkrar ástæður til að velja flísar frá Gruppo Romani.

Kostir Gruppo Romani flísa

Ítölsk hönnun og framleiðsla með rætur allt aftur til 1968
Stór flísasamstæða með mörgum þekktum vörumerkjum, þar á meðal Serenissima og Cercom
Framleiddar í tveimur verksmiðjum á Ítalíu og fluttar út til yfir 90 landa
Fjölbreytt úrval áferða, meðal annars í anda náttúrusteins, marmara, viðar og steinsteypu
Endingargóðar og frostþolnar postulínsflísar fyrir gólf og veggi, jafnt innan- og utandyra
Vottuð gæði og umhverfisstjórnun í framleiðslu

Skoðaðu vinsælar flísar frá vörumerkjum Gruppo Romani, þar á meðal Serenissima og Cercom, í vöruúrvali okkar.

Sérpöntum flísar frá Gruppo Romani

Á þessari síðu sýnum við vinsælustu flísarnar frá Gruppo Romani, Serenissima og Cercom sem við höfum á lager, en það er langt frá öllu því sem samstæðan býður upp á. Við getum sérpantað hvaða flísar sem er úr vöruúrvali þeirra fyrir þig, skoðaðu allt úrvalið á heimasíðu þeirra og láttu okkur svo vita hvað þig vantar.

Ein samstæða, mörg vörumerki

Gruppo Romani var stofnað árið 1968 og er nefnt eftir Romani-fjölskyldunni sem hefur stýrt fyrirtækinu frá upphafi. Undir samstæðuna heyra nokkur af rótgrónustu flísavörumerkjum Ítalíu, og í BYKO leggjum við áherslu á tvö þeirra: Serenissima og Cercom. Hér að neðan má nálgast bækling með almennum upplýsingum um samstæðuna og vöruframboð hennar.

Serenissima – þar sem allt byrjaði

Serenissima er elsta vörumerki samstæðunnar og var grunnurinn að því sem í dag er Gruppo Romani. Vörumerkið er þekkt fyrir fjölbreyttar flísalínur sem sækja innblástur í náttúruleg efni, þar á meðal Fossil-safnið sem færir hlýlegt, steingert yfirbragð inn í endingargóðar postulínsflísar. Skoðaðu Fossil-bæklinginn hér að neðan.

Cercom – arkitektúr og áferð í fyrirrúmi

Cercom er eitt af vörumerkjum Gruppo Romani og sérhæfir sig í flísum með sterkri tilvísun í arkitektúr og efnisáferð. Meðal vinsælustu safna Cercom eru Archistone, sem sækir innblástur í náttúrustein, Square, sem býður upp á hreinar línur og samfellt yfirbragð, og IN.CONTRO, sem sameinar steinsteypuáferð og hlýja litatóna. Skoðaðu bæklingana um öll þrjú söfnin hér að neðan.

Valmynd