Hvað viltu finna?
Innskráning
Sláðu inn símanúmer

BYKO Leiga

BYKO Leiga er staðsett á Skemmuvegi í Breidd og á Selhellu í Hafnarfirði. Þar fást hjólapallar leigðir ásamt miklu úrvali af tækjum og tólum. Í fagverslun á Selhellu 2 í Hafnarfirði er einnig hægt að leigja steypumót, vinnupalla, vinnustaðagirðingar sem og að kaupa og leigja vélar og tæki.

Merki BYKO Leigu

Leiga Breidd

Afgreiðslutími

Virkir dagar: 08:00 - 17:00
Laugardagar: 10:00 - 16:00
Sunnudagar: Lokað

Tækja- og áhaldaleiga, hjólapallar / álpallar
Sími: 515 4020
Tölvupóstur: leiga@byko.is

Leigumarkaður BYKO í Breidd

Fagverslun/Leiga Selhellu 2

Afgreiðslutími

Virkir dagar: 08:00 - 17:00
Helgar: Lokað

Kerfispallar, steypumót o.fl. - s. 515 4033
Verslun/tækjaleiga - s. 515 4018
Rafmagnsverkstæði (Bosch o.fl.) - s. 821 4300
Glugga- og hurðalager - s. 821 4035

Tölvupóstur: leiga@byko.is

Fagverslun BYKO á Selhellu í Hafnarfirði
Blár Bosch á verkstað

Skilmálar og afgreiðsla tækja

Skilatrygging

Allir viðskiptavinir þurfa að leggja fram skilatryggingu þegar þess er krafist. Einvörðungu er heimilt að greiða þá innborgun með greiðslukorti eða sambærilegum greiðslumiðli, viðskiptamenn í reikningsviðskiptum eru undanþegnir innborgunarskyldu. Þær leiguvörur sem leigðar eru út frá Þórðarhöfða (veggjapallar, steypumót, undirsláttarefni, girðingar o.s.frv.) verða eingöngu afhentar viðskiptamönnum sem eru í reikningsviðskiptum við BYKO. Það er bæði fljótlegt og auðvelt að stofna reikning hjá BYKO: Umsókn um reikningsviðskipti.

Þrifgjald og slit á skurðarhlutum

Til að komast hjá þrifagjaldi er mælt með því að tækin komi jafnhrein til baka og þau voru við útleigu. Þrifagjald er mismunandi eftir því um hvaða tæki er að ræða. Nokkur tæki, s.s. gólfslípivél með bollum, kjarnaborar, o.fl., eru aldrei leigð út öðruvísi en að slitfletir séu mældir í millimetrum. Sömu slitfletir eru svo mældir aftur við skil á tæki og er slitgjald fundið út frá því.

Skil á tækjum og skilagjald

Hægt er að skila tækjum alls staðar þar sem BYKO Leiga hefur starfsstöð, allt eftir því hvað hentar best hverju sinni. Skilagjald er tekið fyrir kerrur og stærri tæki hjá Byko leigu og gjaldið er 24 klst. gjaldið.

Skilríki

Starfsmenn BYKO Leigu geta farið fram á framvísun skilríkja þegar tæki er tekið á leigu. Það er ekki nóg að framvísa viðskiptakorti BYKO eða kreditkorti, það gæti líka þurft að sýna skilríki s.s. ökuskírteini, vegabréf o.s.frv.

Samningur og skilmálar

Á samningnum er vísað í skilmála sem má finna hér á byko.is/leiga. Rík áhersla er lögð á að viðskiptavinur passi vel upp á tækin fyrir okkur á meðan þau eru í hans vörslu. Við samningsgerð þarf að gefa upp áætlaðan skilatíma. Hægt er að framlengja samninginn með einu símtali.

Fyrirspurnir

Gott er að fá fyrirspurnir og ábendingar sendar í tölvupósti á leiga@byko.is, hægt er að hafa samband við okkur í gengum facebook, en líka er hægt að hringja í síma 515 4020.

Landsbyggðarþjónusta

Nú er það þannig að mörg tæki og áhöld sem við bjóðum upp á fást aðeins í BYKO Leigu Breidd. Ef viðskiptavinir á landsbyggðinni óska eftir tæki hjá okkur sem ekki er til í Leigunni í nærliggjandi BYKO verslun þá munum við senda tækið til viðskiptavinarins. Sama gildir um þá viðskiptavini sem eru staddir fjarri BYKO verslun. Viðskiptavinur þarf að greiða flutningskostnað en leigutími hefst ekki fyrr en tækið er komið til leigutaka og lýkur þegar tæki er komið aftur til leigusala. Óskir eða fyrirspurnir um að fá send tæki skal senda á leiga@byko.is, í gegnum facebook eða í síma 515-4020.

Tjónaálag

Hægt er að komast hjá kostnaði sem verður vegna óviljandi tjóns á tæki þ.e. sem ekki má rekja beint til gáleysis eða kæruleysis leigutaka. Viðskiptavinur þarf að ákveða þegar hann tekur tæki á leigu hvort hann vilji tjónaálag. Við mælum með því að viðskiptavinir okkar nýti þennan kost þar sem það getur verið mikill kostnaður að greiða fyrir tæki sem reynist bilað eða ónothæft eftir leigu. Athugið að tjónaálag gildir ekki um slithluti svo sem borkrónum í kjarnaborum, borum eða sagarblöðum. Tjón sem verður á slíkum hlutum er alfarið á ábyrgð leigutaka. Tjónaálag gildir ekki ef tæki er stolið.

Lágmarksleigutími á grófvöru/þungavöru

Lágmarksleigutími á grófvöru/þungavöru (Steypumót, girðingar, stálpallar o.þ.h.) er 10 dagar.

Valmynd