Heftibyssa 18V 10-50mm
Öflug 18V heftibyssa sem hentar sérstaklega vel fyrir uppsetningu á Fermacell-trefjagipsplötum, OSB-plötum og krossviði á timburgrindur. Byssan er rafhlöðuknúin og þarf hvorki loftpressu, loftslöngur né gaskúta. Hún er með stillanlegri skotdýpt, lítið bakslag og sérstakan stút sem verndar yfirborð platna við festingu.