Í BYKO LEIGU færðu úrval vinnupalla frá Villalta og hjólapalla frá Frigerio.
Villalta hefur verið leiðandi í framleiðslu vinnupallakerfa síðan 1967, og Mercury vinnupallar frá þeim hafa staðið sig með prýði um allan heim. Þetta vinnupallakerfi sameinar stöðugleika, einfaldleika í notkun og hámarks öryggi, jafnvel þegar unnið er í mikilli hæð.
Kostir Mercury vinnupallakerfis:
• Öryggi í fyrirrúmi: Samræmist evrópskum reglugerðum og tryggir stöðuga og trausta vinnuaðstöðu.
• Léttir, meðfærilegir og auðveldir uppsetningu: Hentar fjölbreyttum verkefnum, hvort sem unnið er við einfaldar eða flóknar byggingar.
• Sveigjanleiki: Auðvelt að aðlaga að ólíkum verkefnum og aðstæðum.Sterkbyggð og vönduð framleiðsla tryggir langan endingartíma og hagkvæmni.
• Vara sem hefur margsannað gildi sitt við íslenskar aðstæður
Mercury vinnupallar hafa reynst áreiðanlegir við allar aðstæður á Íslandi, frá smærri viðhaldsverkefnum til stórframkvæmda, og henta jafnt fyrir byggingarfyrirtæki sem sjálfstæða iðnaðarmenn.
Frigerio er ítalskt fyrirtæki frá árinu 1954 en þeir sérhæfa sig í framleiðslu á hjólapöllum úr áli. Fyrirtækið leggur áherslu á gæði og öryggi við erfið notkunarkskilyrði.
Kostir Frigerio hjólapalla:
• Léttir og meðfærilegir
• Auðveldir í uppsetningu, mikill vinnuhraði næst við uppsetningu og niðurtekningu· Tvær breiddir í boði; einfaldir og tvöfaldir
• Opnanleg gólfborð og stigar fáanlegir ásamt táborði til að tryggja að lausir hlutir falli ekki niður af pöllunum
• Hægt er að ná allt að 15,5m hæð með breiðari gerðinni sem heldur góðum stöðugleika
• Pallarnir eru til sölu og leigu
• Ef viðskiptavinur á pall úr kerfinu er hægt að leigja viðbót ef á þarf að halda
Sérfræðingar okkar búa yfir áralangri reynslu í sölu og leigu á vinnu- og hjólapöllum og veita þér enn frekari upplýsingar. Sendu okkur línu og við svörum þér um hæl!
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394