BYKO hefur komið að mörgum stærstu álgluggaverkefnum sem ráðist hefur verið í hér á landi síðustu ár. Engin verkefni eru þó of smá fyrir BYKO. Meðal verkefna má nefna Bláa Lónið, Leifsstöð, Smáralind, Kirkjusand D hús nýja viðbyggingu Norðurorku og Sjóböðin á Húsavík svo fáein dæmi séu nefnd. Þar á meðal er nokkur glæsileg fjölbýli á Nónhæð.
Byggingarverkefnið á Nónhæð hófst sumarið 2018 og nær yfir þrjú byggingasvæði: Arnarsmára með 40 íbúðum, Nónsmára 1-9 með 53 íbúðum og Nónsmára 11-15 með 47 íbúðum.
Lóðin var keypt árið 2007 en framgangur verkefnisins hefur tafist vegna ósamræmis í deili- og aðalskipulagi en áætlað er að framkvæmdum við Nónsmára 1-9 ljúki að fullu árið 2027.
Heildarfjöldi glugga í verkefninu er áætlaður um 850 talsins, en nákvæmur fjöldi í Nónsmára 1-9 liggur ekki fyrir. Verkefnið hefur almennt gengið vel og var sama hönnun notuð í nánast öllum húsunum.
Verkefnið er í eigu Nónhæðar ehf.
Það er hægt að velja ótal útfærslur þegar kemur að gluggum og hurðum. Það er bara spurning hvaða útfærsla hentar þér best?