Í BYKO leigu er mikið úrval af iðnaðartækjum. Hægt er að leigja tækið sem þörf er á í öllum verslunum BYKO. Í fagverslun á Selhellu 1 í Hafnarfirði er einnig hægt að leigja steypumót, vinnupalla, vinnustaðagirðingar sem og að kaupa og leigja vélar og tæki.
Stundum hentar betur að kaupa, nokkrar stærri vörur eru einnig á sölu hjá okkur í Selhellu
Skoða nánar
Virkir dagar: 08:00 - 17:00
Laugardagar: 10:00 - 16:00
Sunnudagar: Lokað
Tækja- og áhaldaleiga, hjólapallar / álpallar
Sími: 515 4020
Tölvupóstur: leiga@byko.is
Virkir dagar: 08:00 - 17:00
Helgar: Lokað
Kerfispallar, steypumót o.fl. - s. 515 4033
Verslun/tækjaleiga - s. 515 4020
Rafmagnsverkstæði (Bosch o.fl.) - s. 515 4020
Glugga- og hurðalager - s. 821 4035
Tölvupóstur: leiga@byko.is
Virkir dagar: 08:00 - 18:00
Laugardagar: 10:00 - 16:00
Sunnudagar: Lokað
Símanúmer: 460 4800
Tölvupóstur: leiga@byko.is
Virkir dagar: 08:00 - 18:00
Laugardagar: 10:00 - 16:00
Sunnudagar: Lokað
Símanúmer: 480 4600
Tölvupóstur: leiga@byko.is
Allir viðskiptavinir þurfa að leggja fram skilatryggingu þegar þess er krafist. Einvörðungu er heimilt að greiða þá innborgun með greiðslukorti eða sambærilegum greiðslumiðli, viðskiptamenn í reikningsviðskiptum eru undanþegnir innborgunarskyldu. Þær leiguvörur sem leigðar eru út frá Þórðarhöfða (veggjapallar, steypumót, undirsláttarefni, girðingar o.s.frv.) verða eingöngu afhentar viðskiptamönnum sem eru í reikningsviðskiptum við BYKO. Það er bæði fljótlegt og auðvelt að stofna reikning hjá BYKO: Umsókn um reikningsviðskipti.
Til að komast hjá þrifagjaldi er mælt með því að tækin komi jafnhrein til baka og þau voru við útleigu. Þrifagjald er mismunandi eftir því um hvaða tæki er að ræða. Nokkur tæki, s.s. gólfslípivél með bollum, kjarnaborar, o.fl., eru aldrei leigð út öðruvísi en að slitfletir séu mældir í millimetrum. Sömu slitfletir eru svo mældir aftur við skil á tæki og er slitgjald fundið út frá því.
Hægt er að skila tækjum alls staðar þar sem BYKO Leiga hefur starfsstöð, allt eftir því hvað hentar best hverju sinni. Skilagjald er tekið fyrir kerrur og stærri tæki hjá Byko leigu og gjaldið er 24 klst. gjaldið.
Starfsmenn BYKO Leigu geta farið fram á framvísun skilríkja þegar tæki er tekið á leigu. Það er ekki nóg að framvísa viðskiptakorti BYKO eða kreditkorti, það gæti líka þurft að sýna skilríki s.s. ökuskírteini, vegabréf o.s.frv.
Á samningnum er vísað í skilmála sem má finna hér á byko.is/leiga. Rík áhersla er lögð á að viðskiptavinur passi vel upp á tækin fyrir okkur á meðan þau eru í hans vörslu. Við samningsgerð þarf að gefa upp áætlaðan skilatíma. Hægt er að framlengja samninginn með einu símtali.
Gott er að fá fyrirspurnir og ábendingar sendar í tölvupósti á leiga@byko.is, hægt er að hafa samband við okkur í gengum Facebook, en líka er hægt að hringja í síma 515 4020.
Hægt er að komast hjá kostnaði sem verður vegna óviljandi tjóns á tæki þ.e. sem ekki má rekja beint til gáleysis eða kæruleysis leigutaka. Viðskiptavinur þarf að ákveða þegar hann tekur tæki á leigu hvort hann vilji tjónaálag. Við mælum með því að viðskiptavinir okkar nýti þennan kost þar sem það getur verið mikill kostnaður að greiða fyrir tæki sem reynist bilað eða ónothæft eftir leigu. Athugið að tjónaálag gildir ekki um slithluti svo sem borkrónum í kjarnaborum, borum eða sagarblöðum. Tjón sem verður á slíkum hlutum er alfarið á ábyrgð leigutaka. Tjónaálag gildir ekki ef tæki er stolið.
Lágmarksleigutími á grófvöru/þungavöru (Steypumót, girðingar, stálpallar o.þ.h.) er 10 dagar.
Leiguskilmálar
Skilmálar verkstæðis
Terms of the workshop
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394