Sláttuorf bensín UMK450 UE
Honda UMK 450UE er öflugasta sláttuorfið í línunni. Það er umhverfisvænt, hljóðlátt og hentar vel fyrir fjölbreytt verkefni, allt frá heimilisgarðinum til krefjandi verkefna í aðstæðum þar sem atvinnutækja er þörf. Hvort sem slá þarf hátt gras, illgresi, jafnvel kjarr eða runna getur þú treyst Honda sláttuorfunum. Orfinu fylgir vandað og þægilegt burðarbelti ásamt þriggja blaða hníf.