Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
5701363006191;7038090446739;5701081716334

VNR. 55097066

Trim Toxan illgreseyðir

Geng breiðblaða illgresi í grasflötum
Notist eingöngu til eyðingar á illgresi í grasflötum. Má nota hvenær sem er á vaxtartímabilinu.
Notkun:
Notist eingöngu einu sinni á ári en má nota hvenær sem er á vaxtartímabilinu. Bestur árangur næst ef úðað er þegar plöntur eru í góðum vexti, hlýtt er í veðri og loftraki hár. Það dregur úr áhrifum úðunarinnar ef það rignir innan 6 klst eftir úðun. Sláið ekki grasið 3-5 dögum fyrir og eftir meðhöndlun. Hægt að sá grasfræjum 2 mánuðum eftir meðhöndlun. Ekki má nota efnið á grasflatir sem nýbúið er að leggja eða sá í. Stillið stútinn á brúsanum á "Spray" og úðið með minnst 30 cm fjarlægð frá viðfangsefninu. Úðið plönturnar þannig að nánast er farið að drjúpa af blöðunum. Fyrir hvern fermetra er óhætt að sprauta 30 sinnum úr brúsanum.
Gætið að ykkur ef vindur er til staðar þá gæti hann haft áhrit á stefnu úðans. Ef úði berst á aðra plöntu heldur en ætlunin var, skal fjarlægja blaðið strax sem fékk á sig vökvann. Virka efnið er tekið upp í gegnum blöðin og berst síðan um alla plöntuna með safastraumnum ofan í rót. Óhætt er að leika sér á svæði sem hefur verið meðhöndlað eftir að úinn hefur þornað.

brúsi

Uppselt:

Vöruhús

Valmynd