0076285360
Thermowood (Lunawood) Fura paintcut 21x115
Thermowood vatnsklæðning – Náttúruleg, endingargóð og viðhaldslétt
Falleg og endingargóð hitameðhöndluð vatnsklæðning. Efnið er hitameðhöndlað við 212°C, án nokkurrar efna- eða íblöndunar, sem gerir það að fullkomnu vali fyrir umhverfisvænar byggingarlausnir. Klæðningin hefur sértaka yfirborðs áferð sem heldur málningu/lit betur (paint cut) en hefluð áferð. Klæðningin hentar einstaklega vel fyrir krefjandi íslenskar aðstæður.
Helstu eiginleikar:
• Efni: Hitameðhöndlað timbur, án efna – eingöngu með náttúrulegri hita- og gufumeðhöndlun.
• Yfirborð: Klæðningin er með sér meðhöndluðu yfirborði sem heldur málningu/lit betur en heflað yfirborð.
• Stærð: 21 mm þykkt × 115 mm breidd.
• Litur: Verður með tímanum silfurgrár ef ekki er borið á; viðarvörn heldur upphaflega brúna litnum.
• Ending: Áætlaður endingartími klæðningarinnar er allt að 30 ár. Áætluð ending á litnum fer eftir aðstæðum og er ekki viðhaldslaust.
• Viðhald: Þarfnast lítils viðhalds – engin sérstök meðhöndlun nauðsynleg nema til að halda lit.
• Festing: Með nót sem auðveldar uppsetningu og tryggir nákvæmt samræmi.
• Notkun: Sérstaklega gott fyrir íslenskar aðstæður með miklu álagi af veðri og raka.
Klæðningin er í D-klassa sem þýðir að það hentar til notkunar alls staðar þar sem timbrið er ofanjarðar og þolir úrkomu eins og rigningu eða snjókomu. Eiginleikar klæðningarinnar henta einnig fyrir innanhús notkun.