0076286300
BITUS
VNR. 0076286::300:
Thermowood Fura paintcut 21x140
Thermowood vatnsklæðning – Náttúruleg, endingargóð og viðhaldslétt
Falleg og endingargóð hitameðhöndluð vatnsklæðning. Efnið er hitameðhöndlað við 212°C, án nokkurra aukaefna eða íblöndunar, sem gerir það að fullkomnu vali fyrir umhverfisvænar byggingarlausnir. Klæðningin hefur sérstaka yfirborðsáferð sem heldur málningu/lit betur (paint cut) en hefluð áferð. Klæðningin hentar einstaklega vel fyrir krefjandi íslenskar aðstæður.
Helstu eiginleikar:
• Efni: Hitameðhöndlað timbur, án efna – eingöngu með náttúrulegri hita- og gufumeðhöndlun.
• Yfirborð: Klæðningin kemur máluð með sérstakri aðferð (paint cut) sem heldur lit lengur en hefðbundin aðferð. Áætluð ending á litnum fer eftir aðstæðum og því er liturinn ekki viðhaldsfrír.
• Stærð: 21 mm þykkt × 140 mm breidd.
• Litur: Verður með tímanum silfurgrár ef ekki er borið á; viðarvörn heldur upphaflega brúna litnum.
• Ending: Áætlaður endingartími er allt að 30 ár.
• Viðhald: Þarfnast lítils viðhalds – engin sérstök meðhöndlun nauðsynleg nema til að halda lit.
• Notkun: Hentar sérstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður með miklu álagi af veðri og raka.
Klæðningin er í D-klassa sem þýðir að hún hentar til notkunar alls staðar þar sem timbrið er ofanjarðar og þolir úrkomu eins og rigningu eða snjókomu. Eiginleikar klæðningarinnar henta einnig fyrir notkun innanhúss.
Uppsetning og frágangur:
• Borðin eru nótuð og felld (tunga og nót) á langhliðum og læsast því saman við hlið hvers annars.
• Fest er í gegnum tunguna eða beint í gegnum yfirborðið með ryðfríum skrúfum eða saumi, í undirslár (þrýstifúavarið timbur eða álslár) á um 60 cm millibili.
• Skilja þarf eftir minnst 22–25 mm loftræstibil á bak við klæðninguna svo raki nái að leika um og þorna.
• Neðri brún klæðningarinnar á að vera a.m.k. 300 mm frá jörðu og fá fráskorna/skáskorna brún svo vatn renni greiðlega af.
Ítarlegar uppsetningarleiðbeiningar frá Lunawood fylgja með sem skjal á vörunni.

Loading
Stk
lunawood-uppsetningarleidbeiningar.pdf
lunawood-dop-001-pine.pdf
lunawood-epd-thermowood.pdf
Valmynd