Umhverfisvæn vara
5690861701007
BM Vallá
VNR. 0225505:::Grár
Steiningalím grátt
Notkunarsvið: Steiningalím er efni til að líma steinsalla á yfirborð steyptra og múraðra flata.
Steiningalím fæst í mismunandi litum; grátt, hvítt, svart eða sem sérpantaðir litir. Límþykkt er því sem næst 50 – 70 % af þvermáli stærstu korna steinsallans.
Efniseiginleikar: Steiningalím er sementsbundið og tilbúið til notkunar, aðeins þarf að bæta í réttu magni af vatni.
Undirlagið verður að vera berandi og laust við öll óhreinindi, s.s. málningu, olíu, tjöru og ryk.
Laust yfirborð, los, frostskemmdir, slamma/efju o.þ.h. verður að fjarlægja. Í flestum tilvikum þarf að hreinsa flötinn vélrænt með t.d. háþrýstiþvotti, slípun eða sandblæstri.
Undirbúningur: Eins og alltaf þarf að miða múrvinnu við ytri aðstæður. Forðast þarf veðurskilyrði þar sem saman fer sólskin og mikill vindur fyrsta sólarhringinn.
Undirbúa þarf fleti á viðeigandi hátt. Annað hvort að bleyta þá eða grunna með ÍMÚR múrgrunni, þ.e. fjölliðugrunni með um 12 – 13 % þurrefnisinnihaldi.
Ef fletir eru bleyttir eiga þeir að vera sem næst rakamettaðir en samt yfirborðsþurrir þegar húðun hefst.
Ef grunnað er með ÍMÚR múrgrunni þarf grunnurinn að taka sig vel eða þorna áður en húðað er. Gleypna fleti getur þurft að grunna tvisvar og ráðlegt er að þynna grunninn um 25% í fyrri umferð. Grunnurinn þarf að þorna milli umferða. Fleti skal múra innan við sólarhring eftir að grunnað er, annars þarf að grunna aftur.

Loading
poki
Valmynd