Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
3182550837958

Royal Canin

VNR. 95471505

Royal Canin Sporting Life Energy 4300 hundafóður 15 kg

Þurrfóður fyrir vinnuhunda í meðalmikilli þjálfun

Inniheldur mikið af fitusýrum sem gefa aukna orku og úthald undir stöðugu álagi. Orkuminna en Energy 4800 og hentar því einnig hundum utan keppnistímabils.

• Prótein: 28%
• Fita: 21%
• Trefjar: 2,6%
• Lútein: 14,5 mg/kg
• Beta-karótín: 2,0 mg/kg
• Stærð: 15 kg

Auðmeltanlegt
Ríkt af auðmeltanlegum próteinum (LIP) og fitu. Trefjar og góðgerlar (MOS) styðja við meltingu undir álagi. Miðlungsstuttar fitusýrur krefjast lítillar orku við niðurbrot og upptöku, svo hundurinn eyðir minni orku í að melta fóðrið.

Vöðvar, liðir og andoxunarefni
Hátt próteinhlutfall stuðlar að auknu súrefnisflæði til vöðva og viðheldur vöðvamassa. Glúkósamín, kondróítín og ómega-3 fitusýrur styðja við heilbrigða liði, sem skiptir sérstaklega máli hjá hundum í mikilli þjálfun. Blanda andoxunarefna hlutleysir sindurefni sem myndast við aukið álag.

Fyrir hverja
Hunda í vinnu og þjálfun, svo sem sleðahunda, veiðihunda og hunda í bikejoring og canicross. Hentar einnig matvöndum hundum sem fóðrast illa eða eru of grannir.

Fóðrið er orkuríkt. Fylgist vel með holdafari hundsins ef hann er ekki í mikilli vinnu.
Loading

Stk

Valmynd