6411501410382
Snjóskófla/-skafa lengjanleg X-series 53cm
Snjóskólfa/-skafa með lengjanlegu skafti úr nýrri X-Series línu Fiskars er með djúpu og breiðu blaði sem hentar bæði til að moka af göngustígum, bílaplönum, stigum eða bara þar sem þarf að hreinsa snjó. Lögun blaðs snjóskóflu/-sköfu hentar bæði til að ýta snjó og moka. Frábært og fjölnotaáhald til að hreinsa snjó.
Lengjanlegt skaft gefur notanda kost á að stilla lengd svo skólfa/skafa henti þörfum hvers og eins eða hvað hentar við aðstæður hverju sinni. Einkaleyfisvarin hönnun á álkanti gefur eykur möguleika á að höggva í harðan snjó og þessi ný álkantur endist allt að 3x lengur en eldri gerð.
Léttbyggt rafhúðað álskaft léttir notkun skóflunnar en er samt sem áður endingargott. Álskaftið er plasthúðað að hluta til að einangra kulda frá álinu og auka þægindi, og plastið er rifflað að hluta fyrir betra grip. Endingargott plastblaðið úr styrktu fjölliða plasti þolir allt að -30°C án þess að verða stökkt
Afkastamikil en samt nett í geymslu
Stórt D-laga SoftGrip® handfangið hentar vel þegar notandi er í þykkum vetrarvettlingum og haganlegt gert til að minnka álag á úlnlið
Framleidd í Finnlandi