Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
5694230359066

VNR. 55097098

Plöntunærir 500gr

Plöntunærir er áburðarkyrni sem hægt er að nota inni og úti, fyrir pottaplöntur, sumarblóm, matjurtir, gras, tré o.fl. Hæglosandi áburður sem sér plöntum fyrir áburði jafnt og þétt.

Vel nærðar plöntur vaxa betur, eru fallegri og heilbrigðari. Eiga auðveldara með að verjast áföllum vegna sjúkdóma, skordýra, hitasveiflna og þurrks. Útiplöntur lifa frekar af vorhretin og standa fallegar langt fram á haustin. Uppskera matjurta eykst.

Áburðurinn er 100% lífrænn úr sykurreyr með daufum sætum keim. Áburður úr plöntum er aðgengilegasta næring sem plöntur fá.

Notkun
Kyrninu er sáldrað yfir moldina, það má raka því ofan í hana. Eftir sex vikur er helmingurinn uppleystur og þá má huga að endurgjöf. Þrjár áburðagjafir á ári yfir vaxtartíma duga oft. Hugið að mismunandi áburðarþörf tegunda.

Pottaplöntur inni: 1-2 matskeiðar í 10 lítra af mold. 1-2 teskeiðar í 3 lítra af mold.
Sumarblóm, almennt er notað helmingi meira af áburði úti en inni.
Matjurtir: 50-250gr í 10m2 matjurtagarð í raðir við sáningu.
Gras 500gr á 20 fermetra.

Köfnunarefni (N): 11,5%, Fosfat (P2O5): 0,35%, Kalíum (K2O): 4,45%
Brennisteinsdíoxið (SO2): 3,27%, Magnesíum (MG): 0,32%, Natríum (Na): 2,63%.
Loading

Stk

Valmynd