Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
8022452042164

VNR. 0225831

Viðgerðarmúr Mapegrout Fast-Set MAPEI 25 kg

Hraðharðnandi og trefjastyrktur viðgerðarmúr með stýrðri rýrnun, til viðgerða á skemmdri steinsteypu á lóðréttum og láréttum flötum.

• Tekur sig á innan við 30 mínútum og þolir létta umferð eftir um 3 klst. við +20°C
• Allt að 2–2,5 cm þykkt lag í hverri umferð, líka á lóðrétta fleti
• Uppfyllir EN 1504-3, flokk R3
• Brunaflokkur A1
• Efnisnotkun um 18 kg/m² á hvern cm þykktar

Hentar til viðgerða á brúnum súlna, bita og svala, til hraðviðgerða á steyptum iðnaðargólfum og til að fylla í holur og galla í nýsteyptri steypu. Í hvern 25 kg poka fara 3,75–4 l af vatni og blandan er vinnanleg í um 10 mínútur við +20°C.

Undirlag þarf að vera hreint, hrjúft og vætt fyrir notkun. Ekki má leggja efnið út undir +5°C. Múrinn getur breytt um lit eftir harðnun og hentar því ekki sem sýnileg lokaáferð á útveggi.

Afhent í pokum merktum Mapegrout Rapido.
Loading

Poki

Mapegrout_Fast-Set_taeknibladid_EN.pdf

Valmynd