Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
5022640010725;3282391063858

Liberon

VNR. 83114667

Liberon Easy French Polish

Frönsk pólering sem er auðveld í notkun og gefur frábæran árangur. Hentar mjög vel fyrir byrjendur í endurgerð húsgagna. Hentar til notkunar á litlum yfirborðum.

Vinnsluaðferð: Notið góðan pensil eða tusku til að bera á þunnt lag af Liberon Easy Frensh Polish. Vinnið eftir viðaræðunum og forðist að „yfirlappa“ umferðina. Látið þorna í 3-4 tíma milli umferða. Pússið varlega yfir þornaða umferðina með mjög fínum sandpappír eða Ultra Fine (0000) stálull til að fá silkimjúkt yfirborð. Notið rykklút (tack cloth) til að fjarlægja ryk. Berið á eins margar umferðir og þörf er á, eftir sömu aðferð. Þrjár eða fjórar umferðir eru yfirleitt nægjanlegar til að ná hágæða áferð.

Mikilvægt: Gerið alltaf prufu á lítið áberandi stað eða afgangsefni til að sjá endanlegan lit og áferð. Ráðleggingar Liberon.
Besta áferð næst á litlum og meðalstórum flötum, því efnið þornar fljótt. Mælt er með að æfa sig á litlum fleti, áður en borið er á stærri fleti.
Notið góðan, flatan lakkpensil og varist laus hár, því þau geta skaðað áferðina. Vinnið alltaf eftir viðaræðunum þegar unnið er með Easy Frensh Polish eða þegar slípað er með sandpappír.
Til að ná meiri gljáa í áferðina, notið þá Liberon Burnishing Cream, þegar síðasta umferð hefur fullþornað í a.m.k. 7 daga.
Best er að nota Franska póleringu í hlýju rykfríu umhverfi.
Loading

brúsi

Notist inni

Yfirmálun (ca.)

3-4 klst

Efnisnotkun

0,08- 0,12 l/m2 fyrir hverja umferð

Hreinsun

Rauðspritt

Þynnir

Á ekki að þynna

Ásetning

Góðan pensil eða tusku

Valmynd