Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
7391306165276

Hammerite

VNR. 5161388::470ml:

Hammerite Your Color málmmálning til litunar glær stofn

Háglansandi málmmálning sem má bera beint á ryð og er lituð eftir óskum, í yfir 100 litum. Ryðvörn, grunnur og yfirmálning í einu efni. Hentar á járn og stál utanhúss og má einnig nota á við. Fæst í 470 ml og 940 ml.

• Má bera beint á ryð, enginn grunnur nauðsynlegur
• Lituð í verslun, yfir 100 litir í boði
• Hart, gljáandi og vatnsfráhrindandi yfirborð
• Dugar á um 10 m² á lítra
• Snertiþurr eftir um 6 klst., má mála aðra umferð eftir 24 klst.

Notkunarleiðbeiningar
1. Fjarlægið laust ryð og lausa málningu með stálbursta.
2. Pússið létt með sandpappír og fjarlægið ryk.
3. Hreinsið óhreinindi og fitu af fletinum og látið þorna.
4. Málið beint á hreinan málminn.
5. Ál, sink og galvaníserað stál þarf fyrst að grunna með Hammerite Special Metals grunni.
6. Notið við 5–25°C og málið ekki á heita fleti eða í beinu sólarljósi.
7. Hreinsið pensla með Hammerite Brush Cleaner & Thinners eða terpentínu (white spirit).
Loading

Stk

Valmynd