Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
5011867013305

Hammerite

VNR. 5078308::250ml:Blátt

Hammerite málmmálning slétt háglans

Háglansandi málmmálning með sléttri áferð sem má bera beint á ryð. Ryðvörn, grunnur og yfirmálning í einu efni, svo ekki þarf að grunna fyrst. Hentar á nýtt, gamalt, ryðgað eða áður málað járn og stál, t.d. hurðir, bílskúrshurðir, hlið, grindverk, garðhúsgögn og stiga úr málmi.

• Má bera beint á ryð, enginn grunnur nauðsynlegur
• Slétt, háglansandi og vatnsfráhrindandi yfirborð
• Högg- og slitsterk vörn sem endist árum saman
• Dugar á um 10 m² á lítra
• Snertiþurr eftir 1–2 klst., má mála aðra umferð eftir 4 klst.
• Fæst í bláu, hvítu, rauðu, svörtu og silfurgráu í 250 ml og 750 ml

Notkunarleiðbeiningar
1. Fjarlægið laust ryð og lausa málningu með stálbursta.
2. Pússið létt með sandpappír og fjarlægið ryk.
3. Hreinsið óhreinindi og fitu af flötinn, t.d. með Hammerite Brush Cleaner & Thinners, og látið þorna.
4. Málið beint á hreinan málminn. Önnur umferð eftir um 4 klst. gefur jafnasta og besta vörn.
5. Ál, sink og galvaníserað stál þarf fyrst að grunna með Hammerite Special Metals grunni.
6. Notið við 5–35°C og málið ekki á heita fleti eða í beinu sólarljósi.
7. Hreinsið pensla með Hammerite Brush Cleaner & Thinners eða terpentínu (white spirit).
Loading

Stk

Valmynd