5694230608102
Grænni ofna og grillhreinsir
Umhverfisvænn ofna og grillhreinsir. Grænni ofna- og grillhreinsir er sterkt hreinsiefni sem vinnur vel á erfiðum óhreinindum eins og viðbrunni fitu og
matarleifum í ofnum og ofnskúffum, á grillgrindum, innan í grillum og í steikingarpottum. Grænni ofna- og grillhreinsir inniheldur vistvæn umhverfis- og heilsuvæn efnasambönd framleidd hérlendis með endurvinnslu úrgangs.
Notkunarleiðbeiningar
1. Ofnar: Sprautið efninu í kaldan ofn og látið það virka í a.m.k. 15 mínútur. Ef um mikil og/eða viðbrunnin óhreinindi er að ræða gæti efnið þurft að standa á í lengri tíma, t.d. yfir nótt. Skrúbbið vel með bursta eða svampi og þvoið síðan vel með heitu/volgu vatni og t.d. tusku til að fjarlægja hreinsiefnið. Eftir þrifin skal hita ofninn í 200°C og láta hann ganga í a.m.k. 20 mínútur til að brenna af hugsanlegar leifar af
hreinsiefninu.
2. Grill og annað: Sprautið á yfirborðið og leyfið því að virka í minnst 15 mínútur. Skrúbbið vel með bursta
eða svampi og skolið vel með heitu/volgu vatni til að fjarlægja hreinsiefnið.
3. Alltaf skal skola efnið vel af yfirborðinu með vatni.