Fermacell H2O 12,5/1200X900Mm
"Fermacell® PowerPanel H20 er háþróuð vatnsþolin, sementsbundin plata sem hentar vel fyrir veggi, gólf og loft.
Platan er sérstaklega hönnuð til notkunar þar sem raki er til staðar, svo sem í íþrótta- og afþreyingarmiðstöðvum, sundlaugum og eldhús- og veitingaaðstöðu. PowerPanel H20 heldur styrk sínum og stöðugleika, sama hversu rakt umhverfið er.
PowerPanel H20 platan er í brunaflokki A1.
Plöturnar eru styrktar með trefjagleri sem veitir hámarksstyrk og góða hljóðeinangrun."