0171130
Fermacell 12,5/1200x1300 límkant
Límkants trefjagips plata frá Fermacell. Trefjagips er margfalt sterkari heldur en venjulegt gips, þolir vatn þar sem enginn pappír er á plötunum. Fermacell plöturnar eru einnig mjög eldþolnar og með eldvarnar vottun A2.
Stærð 1200x1300mm. Þykkt 12,5mm.
Platan er ein með öllu. Hana má nota bæði í veggi og á gólf, hún minnkar blautvinnu á verkstað og býður upp á aukinn sveigjanleika í hönnun. Verkið vinnst fljótt og vel og byggingareglugerðir eru uppfylltar og gott betur en það.
Fermacell® trefjagipsplötur eru mikilvægur liður í umhverfis- og vistvænum húsbyggingum. Milliveggirnir okkar eru að miklu leyti úr endurunnum efnum og eru búnir til með náttúrulegum efnum (endurunnum pappír, gipsi og vatni) án aukalímefna.
Plöturnar okkar eru nánast útstreymislausar og innihalda engin spilliefni eins og formaldehýð.
Sjálfbærniupplýsingar fermacell® trefjagipsplatnanna hafa verið vottaðar af Byggingarlíffræðistofnuninni í Rosenheim (e. Institute for Building Biology in Rosenheim) og einnig af hinni virtu stofnun Cologne eco Institute þar sem við fengum vottun um „Útstreymislitla vöru“.