Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
1240000016413

OutIn

VNR. 65104143

OutIn Ferðakaffivél Nano, grá

OutIn Nano er ferðaespressóvél sem gerir þér kleift að laga ferskan espressó hvar sem er – í fjallgöngunni, útilegunni, sumarbústaðnum eða á vinnustaðnum. Hún er létt og nett og passar í flöskuhólfið á bakpokanum.

Hitar vatnið sjálf
Nano er með innbyggða hitun sem hitar vatnið upp í allt að 92°C á um 200 sekúndum. Ef þú hellir heitu vatni í tankinn sleppir vélin upphituninni og lagar kaffið strax, sem sparar rafhlöðuna.

20 bara þrýstingur
Stöðugur 20 bara þrýstingur skilar þéttum og góðum espressó í hvert skipti.

Hylki eða malað kaffi
Vélin tekur bæði Nespresso Original hylki og malað kaffi, svo þú velur það sem hentar hverju sinni.

Hleðsla með USB-C
Rafhlaðan er hlaðin með USB-C snúru og dugar í um 5 espressóbolla á hleðslu þegar vélin hitar vatnið sjálf.

Svona notarðu Nano
Helltu 50–80 ml af köldu eða heitu vatni í tankinn, settu malað kaffi eða hylki í haldarann og ýttu á hnappinn.

Nánari tæknilýsing
• Þrýstingur: 20 bör
• Vatnstankur: 80 ml
• Hitun: allt að 92°C
• Tekur malað kaffi: Já
• Tekur Nespresso Original hylki: Já
• Hleðsla: USB-C
• Afl: 90 W
• Stærð (B x H x D): 6 x 23 x 6 cm
• Þyngd: 0,67 kg
• Litur: Grár (Space Grey)
• Gerð: OTEM-01-SG
Loading

Stk

Valmynd