Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
4006825640335;74800014810

Einhell

VNR. 748000148

Einhell Hleðslutæki CE-BC 10M

Einhell CE-BC 10 M er rafhlöðuhleðslutæki með örgjörvastýringu sem er sérstaklega hannað fyrir afkastamiklar rafhlöður nútíma ökutækja. Tækið hentar fyrir fjölbreyttar gerðir 12 V rafhlaðna, þar á meðal gel-, AGM- og blýsýrurafhlöður, bæði viðhaldsfríar og viðhaldslitlar.

Snjallt rafeindakerfi greinir gerð og ástand rafhlöðunnar og velur sjálfkrafa bestu hleðslustillingu hverju sinni. Markmiðið er að tryggja hraða en jafnframt hlífðarsama hleðslu sem hámarkar endingu rafhlöðunnar án þess að skerða afköst hennar.


Viðhalds- og hæghleðsla (e. trickle charge) heldur rafhlöðunni í ákjósanlegu hleðsluástandi yfir lengri tíma og dregur úr álagi á rafhlöðuna. Þetta gerir tækið sérstaklega hentugt fyrir ökutæki sem eru lítið notuð eða standa lengi óhreyfð, svo sem árstíðarbundin farartæki t.d ferðavagnar, mótorhjól og vespur.

CE-BC 10 M er einnig búið sérstakri vetrarhleðslustillingu fyrir hitastig undir 5°C, endurnýjunarstillingu (Recondition Mode) fyrir djúpt tæmdar rafhlöður og aflgjafastillingu sem gerir kleift að nota tækið sem 12 V aflgjafa.

Tækið með sjálfvirka vörn gegn ofhleðslu, skammhlaupi og rangri skautun. Skýr LCD-skjár sýnir bæði spennu rafhlöðunnar, hleðslustöðu og virka hleðslustillingu. Fulleinangraðar rafhlöðuklemmur tryggja örugga og einfalda tengingu, og á húsinu er veggfesting til að auðvelda uppsetningu og geymslu.
Loading

stk

Þyngd

0,692 kg

Volt

12 V

Startstraumur

10 A

Valmynd