Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
3760262511559

VNR. 55091108

Botaneo Ræktunarpottur

Ræktaðu kryddjurtir, grænmeti eða jafnvel blóm allan ársins hring án vandræða með ræktunarpottunum frá Véritable.
Stingdu í samband, fylltu á vatnið, settu Lingot í og tækið sér um sig sjálft í allt að 3 vikur. Með sérhannaðri hæðarstillanlegri LED lýsingu sér tækið til þess að ljósið veiti kjörið birturóf fyrir plönturnar og líki eftir náttúrulegum sólargangi, þ.e. 16 klst. af birtu og 8 klst. af myrkri.
Hlutlausa áveitukerfið sér til þess að ekki þurfi að vökva plönturnar heldur sé nóg að fylla á vatnið af og til.
Lingot einingarnar fyrir Véritable ræktunarpottana innihalda alla þá næringu sem að plönturnar þurfa á að halda svo ekki þarf að huga að viðbættri næringu.
Saman myndar þetta eina heild sem sér til þess að þú getir verið með ferskar kryddjurtir eða grænmeti til taks í eldhúsinu þegar að þér hentar.
Botaneo er fyrirferðarlítill og hentar því vel í minni eldhús þar sem að pláss er af skornum skammti. Með fylgja 2 Lingot fræeiningar til þess að koma þér af stað í ræktuninni.
Lingot einingarnar sem fylgja eru basilíka og krulluð steinselja.
Loading

stk

Valmynd