Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Límtré Vírnet

VNR. 0231456

Bárustál greencoat 0,5mm 7011 steinn

ATH verð miðast við meter.
Þegar þak er neglt er mælt með að nota 12-14 stk. af þaksaum (3,7x60mm) á hvern fermetra. Eins er mælt með 10-12 stk. af nöglum eða skrúfum (4,8x35mm) á fermetra þegar festa skal bárujárn á veggi. Plötubreidd : 1070mm. Klæðningarbreidd : 990mm.
Þessa vöru er einungis hægt að fá í gegnum sérpöntun, hægt er að senda tölvupóst á timbur@byko.is.
Þessi vara er klippt í lengdir við hverja pöntun, vinsamlegast hafið samband við sölumenn timburverslana til að panta eða fá tilboð

HVAÐ ER GREENCOAT®?
GreenCoat® er umhverfisvænt litað stál framleitt af SSAB fyrir sérstaklega krefjandi aðstæður. Klæðningin er varin af húð unnin úr sænskri repjuolíu og hefur gengið í gegnum áratugalangt þróunarferli til að tryggja sem bestu endingu.

Klæðning sem þolir íslenskar aðstæður
Klæðning þarf ekki bara að líta vel út, en þarf líka að þola erfitt veður, stöðugt áreiti og tærandi aðstæður. GreenCoat® hefur verið þróað og prófað til að þola þær sérstaklega erfiðu aðstæður sem við þekkjum svo vel hér á landi.

Nauðsynlegt viðhald
Ending klæðningar fer ekki bara eftir efni, staðsetningu og umhverfisþáttum heldur líka viðhaldi. Reglubundin þrif fjarlægja salt, sand, sót og aðra óværu. Því er gott að þrífa klæðninguna á hverju vori og gera það hluta af reglubundnu viðhaldi á húsinu. Á hverju húsi eru staðir eða hliðar þar sem regnvatn fellur ekki oft. Gott er að veita þessum stöðum sérstaka athygli og þrífa vel. Hægt er að fyrirbyggja tæringu og aðra veðrun með reglubundnum þrifum, helst á hverju vori. Við þrifin ætti að nota vatn og mjúkan bursta sem nær í flestar rifur. Þá má líka nota Háþrýstidælu. Venjulegur uppþvottalögur er nóg til að ná flestum óhreinindum af en það má líka nota hreinsefni til iðnaðarnota í magni sem framleiðandi leggur til.

Bárustál GreenCoat Einblodungur.pdf

Valmynd