Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Norland jólaseríur – gerðar fyrir íslenskan vetur

Rok, slydda og snjór? Norland Micro LED-seríurnar eru IP65 og ráða við krefjandi útiaðstæður.

Veldu á milli fíngerðra Micro LED-ljóspunkta og klassískra, stórra LightFest-pera, í mörgum litum og gerðum. Áttu eldri Scanlight-seríur? Norland Micro LED tengist þeim beint.

Af hverju Norland?

Jólaseríur sem eru valdar fyrir íslenskar aðstæður – og passa við seríurnar sem þú átt fyrir.

IP65 á öllum Micro LED-seríum – rykþéttar ljósaseríur með öflugri vörn gegn vatni
Samtengjanlegar við eldri Scanlight Micro LED-seríur sem þú átt fyrir
Allt að 3.000 ljós á eina innstungu
Herpihólkur fylgir öllum útiseríum og ver samskeytin betur gegn raka
Sterkur gúmmíkapall og allt að 20.000 klst. endingartími á String og Cluster
Marglitu seríurnar eru með stjörnuhvítum ljósum sem gefa frá sér hlýlegt og fallegt yfirbragð

IP65 – fyrir íslenskt veðurfar

Íslenskur vetur er óútreiknanlegur. Þess vegna skiptir IP-vörnin máli.

IP-merkið á kassanum segir til um hversu vel serían er varin. Fyrri talan á við um ryk og aðra aðskotahluti, sú seinni um vatn.

IP65 – Micro LED (String, Cluster, Grýlukerti og Net): rykþéttar ljósaseríur með öflugri vörn gegn vatni. Þola vatnsbunur úr öllum áttum og henta því sérstaklega vel utandyra, jafnvel á óvörðum stöðum þar sem rigning og slydda geta leikið um ljósin. Frábær kostur fyrir íslenskar veðuraðstæður.

IP44 – LightFest E14: varin gegn vatnsslettum. Hentar utandyra þar sem aðstæður eru ekki of krefjandi, til dæmis undir þakskyggni.

Gott að vita: Hvorki IP65 né IP44 þýðir að serían þoli að liggja í vatni. Gakktu vel frá tengjunum og notaðu herpihólkinn sem fylgir.

Áttu eldri Scanlight-seríur?

Eldri Scanlight Micro LED-seríur má tengja beint við Norland Micro LED-seríur. Þú bætir einfaldlega nýjum seríum við þær sem þú átt fyrir – allt að 3.000 ljós á eina innstungu.

LightFest E14 er sérstakt kerfi með eigin innstungu og tengist ekki eldri seríum.

Norland Micro LED – smáir ljóspunktar

String, Cluster, Icicle og Net. Allar IP65 og allar tengjast saman.

LightFest E14 – stórar, klassískar perur

Perur sem má skipta um. Fyrir þakskyggni, svalir og pallinn.

Svona tengir þú seríurnar saman

Micro LED: allt að 3.000 ljós á eina innstungu. LightFest: allt að 800 ljós.

Micro LED og LightFest eru tvö aðskilin kerfi og tengjast ekki hvort við annað.

Innstungur og tengi

Innstungan fylgir ekki seríunum – mundu að setja hana í körfuna.

Til að þétta samskeytin á seríunum

Valmynd