BYKO PLÚS er fríðindaklúbbur fyrir einstaklinga sem vilja fá aukinn ávinning af sínum viðskiptum við BYKO. Félagar klúbbsins safna punktum sem við köllum BYKO krónur, sem hægt er að umbreyta í Vildarpunkta Icelandair eða inneign í BYKO.
Ásamt því að fá félagar í BYKO PLÚS ýmis konar sértilboð og njóta sérstakra fríðinda.
Hér eru skilmálar BYKO PLÚS.
Skráðu þig
1.1. Skilmálar þessir gilda um aðild einstaklinga („félagar“) að fríðindaklúbbi BYKO ehf. („BYKO“), kt. 460169-3219, fyrir einstaklinga sem vilja njóta aukins ávinnings af sínum viðskiptum við BYKO. Fríðindaklúbbur þessi ber heitið BYKO PLÚS.
1.2. Með aðild að BYKO PLÚS safna einstaklingar punktum („BYKO Krónur“), sem unnt er að umbreyta í Vildarpunkta hjá Icelandair Saga Club eða inneign í BYKO. Auk þess njóta félagar ýmissa sértilboða og sérstakra fríðinda.
1.3. Með því að skrá sig í fríðindaklúbb BYKO PLÚS, nýta þá þjónustu eða á annan hátt taka þátt í BYKO PLÚS, samþykkir viðkomandi skilmála þessa.
2.1. Aðild að BYKO PLÚS er háð því skilyrði að félagi sé 18 ára eða eldri. Aðild er persónubundin og ekki er heimilt að skrá sig fyrir hönd annarra, þar með talið lögaðila. Aðild er ekki framseljanleg.
2.2. Skráning fer fram rafrænt á vef BYKO (byko.is/mitt) og krefst kennitölu, netfangs og símanúmers. Við skráningu fellur úr gildi allur fastur afsláttur sem félagi kann að hafa haft.
3.1. Fyrir hverjar 25.000 kr. sem verslað er fyrir á fullu verði hjá BYKO safnast 1.500 BYKO Krónur. BYKO Krónur safnast ekki þegar keyptar eru afsláttarvörur eða á meðan sérstök afsláttarkjör eru í gildi, þ.m.t. sértilboð og önnur fríðindi sem eingöngu standa félögum til boða.
3.2. Félagi getur valið um að umbreyta BYKO Krónum í inneign í BYKO eða Vildarpunkta hjá Icelandair Saga Club.
3.2.1. BYKO Krónur gilda í eitt ár frá ávinnsludegi.
3.2.2. Sé BYKO Krónum ekki umbreytt fyrir fyrrgreint tímamark falla þær niður.
3.2.3. Ef BYKO Krónum er breytt í inneign eru þær færðar yfir á BYKO inneignarkort („BYKO plúskort“). BYKO plúskort gildir í eitt ár frá stofnun þess.
3.2.4. Ef BYKO Krónum er breytt í Vildarpunkta Icelandair gilda reglur og skilmálar Icelandair Saga Club um gildistíma.
3.3. Það getur tekið allt að 48 klst. að umbreyta BYKO Krónum yfir í Vildarpunkta Icelandair. Svo að umbreyting BYKO Króna í Vildarpunkta Icelandair geti átt sér stað er nauðsynlegt að félagi sé jafnframt skráður í Icelandair Saga Club. Það er á ábyrgð félaga að skrá rétt Saga Club númer þegar óskað er eftir að umbreyta BYKO Krónum í Vildarpunkta Icelandair.
3.4. Inneign á BYKO plúskorti er tengd kennitölu félaga og er ekki framseljanleg.
4.1. Félagar fá aðgang að mánaðarlegum sértilboðum. Sértilboð eru aðeins aðgengileg félögum BYKO PLÚS.
4.2. Séu önnur afsláttarkjör BYKO virkjuð, svo sem Félagi í framkvæmdum eða palla afsláttur sem eru virk í 3 mánuði í senn, safnast ekki BYKO Krónur vegna þeirra vara sem falla undir viðkomandi afsláttarkjör.
5.1. Með því að samþykkja skilmála þessa skuldbindur félagi sig til að fara eftir og lúta ákvæðum þeirra.
5.2. BYKO áskilur sér rétt til að afturkalla áunnar BYKO Krónur, loka aðild og/eða grípa til annarra nauðsynlegra ráðstafana ef rökstuddur grunur vaknar um misnotkun, rangfærslur, svik, brot eða aðra háttsemi sem brýtur í bága við skilmála þessa eða almennt viðskiptasiðferði.
6.1. BYKO áskilur sér rétt til að breyta skilmálum BYKO PLÚS þegar þörf þykir.
6.2. Nýir skilmálar taka gildi við birtingu, nema annað sé tekið fram.
7.1. Félagi getur sagt upp aðild að BYKO PLÚS hvenær sem er. Uppsögn tekur gildi þegar hún hefur verið staðfest af þjónustuveri BYKO.
7.2. BYKO áskilur sér rétt til að segja einhliða upp aðild félaga hvenær sem er. Skal tilkynning um slíkt berast á skráð netfang félaga.
7.3. BYKO áskilur sér einnig rétt til að segja upp aðild einhliða og án fyrirvara ef rökstuddur grunur vaknar um brot á skilmálum þessum eða um að félagi hafi viðhaft einhverja þá háttsemi sem fram kemur í ákvæði 5.2. Skal tilkynning um slíkt berast á skráð netfang félaga.
8.1. Með skráningu í BYKO PLÚS samþykkir félagi að fá tilkynningar, tilboð og markaðsefni í gegnum skráðar samskiptaleiðir. Félagi getur afþakkað slíka miðlun hvenær sem er. Vinnsla persónuupplýsinga fer fram í samræmi við gildandi lög og persónuverndarstefnu BYKO.
8.2. Með skráningu í BYKO PLÚS veitir félagi BYKO heimild til að nota persónuupplýsingar, til eigin nota í markaðs- og þjónustutilgangi, í samræmi við persónuverndarstefnu BYKO.
8.3. Við skráningu í BYKO PLÚS gefur félagi BYKO heimild til að miðla upplýsingum um sig til Icelandair, sé sótt um að breyta BYKO Krónum í Vildarpunkta hjá Icelandair Saga Club.
9.1. Allar fyrirspurnir, athugasemdir eða tilkynningar er varða BYKO PLÚS skal beina til BYKO á netfangið byko@byko.is.
10.1. Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum.
10.2. Rísi ágreiningur umskilmála þessa eða annað sem varðar BYKO PLÚS fríðindaklúbbinn skal hann borinn undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
10.3. Skilmálar þessir taka gildi við birtingu.
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394