Þegar steinsteypan er lögð út er nauðsynlegt að víbra steypuna þannig að hún fái jafna dreifingu á grjóti, möl og sementi. Þess vegna er víbrator nauðsynlegt tæki í steypuvinnuna. Passa skal að hafa aldrei víbrator í gangi ef steypan umlykur ekki hausinn því að þá getur hann ofhitnað. Hægt er að velja um 25 mm haus eða 36 mm haus.
LEIGUVERÐ
- 4 klst: 5.920 kr.
- 24 klst: 7.400 kr.
- Viðbótardagur: 3.700 kr.
- Vika: 18.500 kr.
- Trygging: 0 kr.