Leiguvara
VNR. 97100265
Vegatálmi 330 Rauður, 24 kg
- Lengd: 1.490 mm
- Breidd: 510 mm
- Hæð: 810 mm
- Þyngd: 24 kg (tómur)
- Rúmmál: 330 lítrar
- Efni: Pólýetýlen (PE)
- Samtenging: Allt að 26° horn í læstri stöðu
Vegatálmi sem hentar til tímabundinnar afmörkunar vinnusvæða, vegaframkvæmda og annarra svæða þar sem stýra þarf umferð. Hægt er að tengja vegatálmana saman og festa á þá viðeigandi ljósabúnað. Tálmana má fylla með vatni til að auka stöðugleika og tæma eftir notkun.
NOTKUN VIÐ FROST
Ekki má fylla vegatálmann alveg af vatni þegar hætta er á frosti. Hægt er að blanda salti í vatnið til að lækka frostmark þess. Taflan sýnir áætlað frostmark miðað við mismunandi saltmagn í 10 lítrum af vatni.
| Vatn | Saltmagn | Áætlað frostmark |
|---|---|---|
| 10 lítrar | 1 kg | -6 °C |
| 10 lítrar | 2 kg | -13 °C |
| 10 lítrar | 2,5 kg | -16 °C |
| 10 lítrar | 3 kg | -21 °C |
Frostmörk eru viðmiðunargildi fyrir fulluppleyst venjulegt salt (NaCl) í vatni. Við blöndun skal tryggja að saltið leysist alveg upp.
Valmynd