Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Leiguvara

VNR. 97662086

Rörafrystir 230V

  • Stærð: 10–54 mm
  • Hentar fyrir: Kopar- og stálrör

Rörafrystir sem er notaður þegar gera þarf við, breyta eða færa lagnir án þess að tæma allt kerfið. Tækið er sett utan á rörið og frystir vatnið í lögninni þannig að myndast ístappi sem stöðvar rennsli á meðan unnið er. Hentar vel fyrir viðgerðir og breytingar á vatns- og hitakerfum þar sem mikilvægt er að halda niðri raski og spara tíma. Mikilvægt er að taka tækið ekki af og slökkva ekki á því fyrr en vinnu við lögnina er lokið.



FRYSTITÍMI

Frystitími fer eftir stærð og gerð rörsins. Töflurnar sýna viðmiðunartíma samkvæmt leiðbeiningum Rothenberger við 22 °C umhverfishita.

Koparrör

Rörastærð Frystitími
10 mm ≥ 6 mín.
12 mm ≥ 7 mín.
14/15 mm ≥ 8 mín.
16 mm ≥ 9 mín.
18 mm ≥ 10 mín.
20 mm ≥ 12 mín.
22 mm ≥ 14 mín.
28 mm ≥ 19 mín.
32 mm ≥ 23 mín.
35 mm ≥ 28 mín.
42 mm ≥ 40 mín.
54 mm > 55 mín.


Stálrör

Rörastærð (ytra þvermál) Frystitími
10,2 mm ≥ 6 mín.
13,5 mm ≥ 8 mín.
17,2 mm ≥ 10 mín.
21,3 mm ≥ 13 mín.
26,9 mm ≥ 18 mín.
33,7 mm ≥ 25 mín.
42,4 mm ≥ 40 mín.
48,3 mm ≥ 50 mín.

Athugið: Frystitímar eru til viðmiðunar og geta verið lengri eftir aðstæðum. Vatnsrennsli þarf að stöðva áður en frysting hefst. Nota þarf hitaleiðandi krem milli rörsins og klossanna til að tryggja góða kælingu.

Ekki má hefja vinnu við lögnina fyrr en viðeigandi frystitíma er náð og hitastig frystiklemmunnar er komið niður fyrir -5 °C. Tækið þarf að vera í gangi á meðan unnið er við lögnina.



LEIGUVERÐ

  • 4 klst.: 14.240 kr.
  • 24 klst.: 17.800 kr.
  • Viðbótardagur: 8.900 kr.
  • Vika: 44.500 kr.
  • Trygging: 15.000 kr.


ROFROST_Turbo_II_R290_English_Instructions_With_Diagrams.pdf

Valmynd