Parket og trégólf er slípað með þessari. Vélin vinnur niður allar verpingar í gólfborðum og planar gólfin þannig að þau verða slétt og áferðarfalleg. Við notkun er mjög áríðandi að setja keflið/sandpappírinn ekki niður að gólfinu nema að vélin sé á hreyfingu, annars myndast rás í viðinn eftir keflið sem getur verið erfitt að ná úr. Ágætt er að æfa sig á fínasta pappírnum á meðan verið er að ná tökum á vélinni.
LEIGUVERÐ
- 4 klst: 12.640 kr.
- 24 klst: 15.800 kr.
- Viðbótardagur: 7.900 kr.
- Vika: 39.500 kr.
- Trygging: 20.000 kr.