Leiguvara
VNR. 97660067
Borvél 18V m/gír f. jarðvegsskrúfur
- Notkun: Til að skrúfa niður jarðvegsskrúfur
- Undirbúningur: Mælt er með að forbora stýrigat með 20–40 mm SDS bor
- Passar fyrir: Jarðvegsskrúfur, t.d. M76x800 með gír
- Athugið: Nota þarf réttan haus fyrir viðeigandi skrúfu
Vél og gír til niðursetningar á jarðvegsskrúfum. Fyrsta skrefið er að forbora stýrigat til að fá betri stýringu og kanna jarðveginn áður en skrúfan er sett niður. Þegar skrúfan er komin í réttan farveg er vélin sett á skrúfuna og hún skrúfuð niður í rétta hæð.
Mikilvægt er að halda skrúfunni lóðréttri á báða ása og nota réttan haus fyrir þá skrúfu sem verið er að setja niður. Ekki er mælt með að skrúfa jarðvegsskrúfuna til baka ef hún fer of djúpt, þar sem það getur myndað holrúm undir henni og minnkað burðargetu.
LEIGUVERÐ
- 1/2 dagur: 14.400 kr.
- 1 dagur: 18.000 kr.
- 2 dagar: 27.000 kr.
- 3 dagar: 36.000 kr.
- Vika: 45.000 kr.
- Viðbótardagur: 9.000 kr.
MYNDBAND
Sjá leiðbeiningarmyndband fyrir niðursetningu jarðvegsskrúfa:
Valmynd