Svona leggur þú Krono Original parket
Krono Original harðparket, sem BYKO selur í vörulínunum MyStyle, MyDream og MyART, er lagt sem fljótandi gólf – hvorki límt né neglt niður.
Með réttu smellikerfi og góðum undirbúningi leggur þú gólfið án þess að kalla til fagmann. Hér finnur þú leiðbeiningarnar, byggðar á upplýsingum frá Krono Original, ásamt uppsetningarmyndbandi neðst á síðunnni.
Góður undirbúningur
Góður undirbúningur skiptir mestu máli fyrir endingargott gólf.
Áður en þú byrjar
Láttu parketpakkana aðlagast óopnaða í rýminu í a.m.k. 48 klukkustundir, flata og hlið við hlið.
Gólfhiti þarf að vera a.m.k. 15°C, lofthiti a.m.k. 18°C og rakastig 50-60% - bæði fyrir og eftir lagningu.
Undirlagið á að vera slétt, hreint, þurrt og stöðugt; ójöfnur mega ekki vera meiri en 3 mm á hvern lengdarmetra.
Leggðu undirlegg (t.d. 2 mm PE-froðu) til að draga úr hljóði á milli hæða, nema þegar lagt er ofan á timburgólf.
Hafðu til höggkubb, dráttarjárn, fúgufleyga, sög og málband áður en þú byrjar.
Sjálf uppsetning skref fyrir skref
Hér er ferlið útskýrt skref fyrir skref, í samræmi við leiðbeiningar Krono Original fyrir smellikerfin 1clic 2go pure+ og Twin Clic.
Valmynd