Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Parket fyrir öll rými

Parket skapar hlýlegt og náttúrulegt útlit, er þægilegt að ganga á og auðvelt í þrifum. Með fjölbreyttu úrvali af litum og áferðum er auðvelt að finna parket sem passar við heimlið þitt. Auk þess er parket slitsterkt og getur enst í mörg ár með réttri umhirðu, sem gerir það að hagkvæmri og fallegri fjárfestingu fyrir heimilið.

Að velja rétt gólfefni skiptir líka miklu máli. Við bjóðum upp á þrjár vinsælar lausnir: harðparket, viðarparket og vinylparket. Hvert efni hefur sína kosti og hentar mismunandi aðstæðum, hvort sem um er að ræða heimili, vinnustað eða sumarhús. Horfðu á myndbandið hér að neðan til að fræðast um muninn á þessum þremur tegundum af parketi.

Framkvæmdakjör

Félagar í BYKO Plús geta skráð sig í sérstök afsláttarkjör sem henta vel í almennum framkvæmdum eins og að skipta um gólfefni. Kjörin gilda í 3 mánuði í senn og hægt er að skrá sig tvisvar á ári.

Skráning í þessi afsláttarkjör fer fram á heimasvæði BYKO PLÚS inni á mitt.byko.is og gefa 25% afslátt af öllu parketi á tímabilinu.

Harðparket – ending og hagkvæmni

Harðparket er einstaklega vinsæl gólflausn sem sameinar styrk, endingu og hagkvæmt verð. Það er framleitt úr pressuðum trefjum með slitsterku yfirborði sem þolir vel daglega notkun, sem gerir það að áreiðanlegu vali fyrir fjölbreyttar aðstæður.

Helstu kostir harðparkets eru að það er mjög slitsterkt og endingargott, auðvelt í þrifum og viðhaldi, auk þess að vera hagkvæmt í innkaupum. Þá er einnig mikið úrval af litum og áferðum í boði, sem gerir þér kleift að finna útlit sem fellur fullkomlega að þínum stíl og rými.

Harðparket hentar sérstaklega vel fyrir fjölskylduheimili þar sem umferð er mikil, sem og á vinnustöðum og skrifstofum þar sem þarf gólfefni sem þolir álag. Einnig er það frábær kostur í leiguhúsnæði þar sem ending og auðvelt viðhald skipta miklu máli.

Viðarparket – náttúruleg fegurð og hlýja

Viðarparket er klassísk og vönduð gólflausn úr ekta við sem gefur rýminu hlýlegt og tímalaust útlit. Hvert gólf er einstakt þar sem náttúruleg mynstur og litbrigði viðarins fá að njóta sín, sem skapar persónulegt og fallegt yfirbragð á heimilinu.

Helstu kostir viðarparkets eru náttúrulegt og fallegt útlit, hlýlegt og notalegt yfirborð og sá möguleiki að slípa og endurnýja gólfefnið, sem lengir líftíma þess verulega. Auk þess getur viðarparket aukið verðmæti fasteigna og er því góð langtímafjárfesting.

Viðarparket hentar sérstaklega vel í stofur og svefnherbergi, þar sem þægindi og útlit skipta miklu máli. Það er einnig kjörið fyrir heimili þar sem lögð er áhersla á gæði og fagurfræði, og fyrir rými þar sem raki er minni og aðstæður henta náttúrulegu efni eins og viði.

Vinylparket – þægindi og vatnsþol

Vinylparket er nútímaleg og fjölhæf gólflausn sem hefur notið sífellt meiri vinsælda vegna endingar, vatnsþols og þægilegrar áferðar. Það er sérstaklega hentugt í rými þar sem álag eða raki er meiri, án þess að fórna útliti eða þægindum.

Helstu kostir vinylparkets eru að það er vatnsþolið og mjög auðvelt í þrifum, hefur mjúkt og hljóðdempandi yfirborð og þolir mikla daglega notkun. Þá hentar það einnig vel með gólfhita, sem eykur þægindi enn frekar á heimilinu.

Vinylparket hentar sérstaklega vel í eldhús og baðherbergi þar sem raki er til staðar, en einnig í bústaði og sumarhús. Það er góður kostur á vinnustöðum með miklu álagi og á heimilum með börn eða gæludýr þar sem slitþol og auðvelt viðhald skipta miklu máli.

Hvernig á að velja rétt gólfefni?

Val á gólfefni fer eftir notkun, staðsetningu og þínum þörfum:

Fyrir mikla umferð og slit: Harðparket eða vinyl
Fyrir hlýlegt og náttúrulegt útlit: Viðarparket
Fyrir raka og auðvelt viðhald: Vinylparket
Fyrir bústað: Vinyl eða harðparket, eftir notkun

Við hjálpum þér að velja

Hvort sem þú ert að innrétta nýtt heimili, endurnýja vinnustað eða gera bústaðinn notalegri, þá hjálpum við þér að finna rétta lausnina. Hafðu samband og fáðu ráðgjöf sem hentar þínum þörfum

Valmynd