Leita
Innskráning
Sláðu inn símanúmer

Góð ráð

Málning og litakort

Málning og litakort

Hér finnur þú góð ráð þegar kemur að því að mála heimilið. Litaval setur tóninn í allri hönnun og leggur grunninn að fallegu rými. BYKO hefur fengið í lið mér sér úrvalslið hönnuða og fagurkera til að setja saman litakort, sem veita innblástur og hjálpa þér að skapa réttu stemninguna í þínu rými.

Elísabet við þróun litakortsins
Jóhanna mælir með þessum litum

Jóhanna Heiður, litaráðgjafi BYKO, hefur valið fjóra fallega, mjúka og notalega liti sem gætu hentað þínu heimili.

Skoða litina

Litaráðgjöf
Gjøco innimálning

Gerðu heimilið hlýlegra með fallegum litum

Litakort Friðriks Ómars

Í samstarfi við BYKO setti Friðrik Ómar saman skemmtilegt litakort. Litirnir sex eru innblásnir af uppáhalds tónlistarfólki hans og þeim hugrenningatengslum sem skapast á milli lita og tóna.

Í litakortinu er að finna litina Michael, Turner og Mercury, ásamt fleiri litum sem skírðir eru í höfuðið á þeim dívum sem hafa veitt Friðriki innblástur.

Skoða litakort

Friðrik Ómar með litaprufurnar og uppáhalds plöturnar
Stofa í ljósgráum lit
Fleiri litakort

Hvernig stemningu viltu skapa í þínu rými? Á að velja ljósa liti eða dökka? Í hvaða átt snýr rýmið og hvað annað er þar inni?

Breyttu með málningu

Með ólíkum aðferðum og réttum litum getur maður nefnilega endurmótað herbergi og hreinlega gjörbreytt ásýnd þeirra. Því getur komið sér vel að þekkja ólíkar aðferðir til að skapa nýja upplifun á stærð og lögun rýma.

Skoða nánar

Stofa í ljósgráum lit
Litir í svefnherbergið

Jóhanna Heiður, litaráðgjafi BYKO, valdi nokkra liti af þeim litakortum sem við höfum unnið með að undanförnu og henta einkar vel í svefnherbergi.

Skoða nánar

Svefnherbergi í dökkbláum lit
Minnislistar fyrir málun

Áður en hafist er handa við að mála innandyra er gott að vera vel undirbúinn. Hér finnur þú nokkur atriði sem gott er að hafa í huga, líkt og máltaka og þrif.

Skoða nánar

Minnislisti fyrir málun
Gljástig á málningu

Matt eða glansandi? Gljástig segja til um hve glansandi málningin er á kvarðanum 0 til 100 þar sem 100 er mest glansandi. Hversu glansandi málningu þú ættir að nota fer eftir mati á því hvað er hentugt og hvað þér þykir fallegt.

Skoða nánar

Rými
Spurt og svarað

Hér eru algengar spurningar sem snúa að málningu. Er hægt að mála flísar? Hvernig er best að mála loft? Og fleiri sniðug ráð.

Skoða nánar

Veggir málaðir
Valmynd