Innskráning
Sláðu inn símanúmer

Góð ráð

Litakort Karenar

Litakort Karenar

Karen Ósk Magnúsdóttir, innanhússráðgjafi, hefur búið til einstaklega falleg og heildstæð litakort fyrir okkur. Í ráðgjöf sinni leggur Karen áherslu á að litirnir og litaval endurspegli heimilið og þá sem þar búa.

Litakortin er svo hægt að skoða hér neðar.

Litakort Karenar
Haustlitir

Jarðlitir eru í aðalhlutverki í haustlitakortinu. Það inniheldur sígilda hvíta tóna ásamt mildari jarðlitum með nokkrum björtum litum í bland.

Frávik geta verið á milli lita á vef og á litakorti. Við mælum með að velja af litakorti í verslunum okkar.

Vorlitir

Við val litanna sótti ég innblástur frá umhverfinu og gróðrinum sem vaknar á vorin. Einnig höfðu straumar og stefnur áhrif sem og geta litanna til að parast saman og mynda pallettur milli litaraða. Vorlitirnir eru fjölbreyttir og ættu allir að finna sinn rétta lit.

Frávik geta verið á milli lita á vef og á litakorti. Við mælum með að velja af litakorti í verslunum okkar.

Valmynd