Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu
1220000490116

VNR. 50612019

Blackstone 22" Rafmagns Pönnugrill

Rafmagns pönnugrillið frá Blackstone gerir þér fært að færa pönnugrills upplifunina inn á heimilið. Nýja E-Series rafmagns pönnugrillið notar 1600 vött til að ná alvöru hita. Grillið má nota bæði innan- og utandyra og hentar það vel á svalir (sérstaklega þar sem bannað er að nota gas- eða kolagrill á svölum). Grillið er með heilsteypta álgrindarplötu og endingargóða keramik-títan grillplötu.
Til að fá sem mestan hita á grillið þá þarf að fjarlægja þrýstiskrúfur frá brennurum. Hægt er að gera þetta með einföldum hætti og tekur 5-10 mínútur. Sjá myndband hér
Að þrífa blackstone pönnu eftir notkun
  1. 1. Gott að hita Blackstone pönnugrillið um 15 min fyrir notkun.
  2. 2. Þegar búið er að elda og slökkva á pönnunni og láta pönnuna kólna svolítið (þarf að vera heit en ekki of) er best að hella eða sprauta rólega úr brúsa smá vatni yfir og láta krauma í nokkrar sekúndur til að losa matarleifar og skafa síðan matarleifarnar og vatnið í gatið sem er fyrir miðju þar sem það safnast saman í litla skúffu fyrir aftan pönnuna. Passa að skafa ekki húðina sem myndast hefur á pönnunni.
  3. 3. Strjúka svo með pappírsþurrku vel yfir allan flötinn, gott að halda pappírsþurrkunni með grilltöng ef að pannan er heit.
  4. 4. Gott að setja síðan nokkra dropa af vatni á bletti sem ekki hafa farið og nudda yfir með Blackstone hreinsisvampi eða sambærilegu og þurrka svo aftur yfir með pappírsþurrku.
  5. 5. Þagar pannan er orðin hrein þá er gott að bera þunnt lag af matarolíu yfir til að verja flötinn og undirbúa hana fyrir næstu notkun.
  6. 6. Muna svo að tæma skúffuna aftan á pönnunni þegar vatnið í henni er orðið kalt

Stk

Uppselt:

Vöruhús

Valmynd