Viðgerðarþjónusta BYKO
Hvort sem þú ert að fara í stærri framkvæmd eða laga smáatriðin sem skipta máli, þá erum við hjá BYKO alltaf með þér! Viðgerðarþjónustan okkar er hönnuð til að létta þér lífið – við sjáum um það sem þarf að laga, svo þú getir haldið áfram með verkefnin.
Hvað á að gera ef vara frá BYKO bilar?
Ef vara sem þú verslar hjá BYKO bilar, erum við hér til að leysa málið með þér!
Hvað gerir þú?
Komdu með vöruna á þjónustuborð BYKO. Við tökum við vörunni og komum henni á verkstæðið.
Er varan í ábyrgð?
Ef varan er í ábyrgð er mikilvægt að koma með kvittun fyrir kaupunum, einnig er hægt að nálgast kvittunina inni á þínu mittBYKO svæði ef varan er keypt á kennitölu.
- Einstaklingsábyrgð: 2 ár frá kaupum.
- Fagaðilaábyrgð: 1 ár frá kaupum.
Áður en komið er, mælum við með að kynna þér skilmála BYKO um ábyrgðir og viðgerðir, svo að allt gangi snuðrulaust fyrir sig. Við erum til staðar með þér í gegnum allt ferlið!
Viðgerðarverkstæði BYKO
Viðgerðarverkstæði BYKO í Selhellu sér um eftirfarandi vörumerki.
- BOSCH (viðurkenndur þjónustuaðili)
- Rehau (viðurkenndur þjónustuaðili)
- Novopress (viðurkenndur þjónustuaðili)
- Einhell
- Ryobi
- Gardena
- Paslode & Haubold
- Altrad Belle
Ef þið eruð með spurningar eða fyrirspurnir um varahluti, þá er hægt að hafa samband í netfangið varahlutir@byko.is
Raftækjaverkstæðið Síðumúla
Staðsetning: Síðumúla 4, 2. hæð
Afgreiðslutími: alla virka daga kl. 10:00-18:00
Símanúmer: 412-2200
Tölvupóstur: mottaka@rvs.is
Merki:
- Philips
- Melissa
- Wilfa
- Ariete
- Severin
- iRobot
- Senseo
- OBH
- Elvita
- Dolce Gusto
- KitchenAid
Smith og Norland
Staðsetning: Borgartún 22
Afgreiðslutími: alla virka daga kl. 08:00-17:00
Símanúmer: 520-3000
Tölvupóstur: verkstaedi@sminor.is
Merki:
- BOSCH (heimilistæki)
- Siemens
- Stadler
Hr Jón
Staðsetning: Smiðjuvegi 3
Afgreiðslutími: alla virka daga kl. 08:00-17:00
Símanúmer: 895-6947
Tölvupóstur: jon@hrjon.is
Merki:
- Russel Hobbs raftæki
