Leita
Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Svansvottun

Hér má finna vottanir fyrir svansvottaða glugga frá BYKO.

Greninál í skógi
Gluggar frá BYKO hljóta Svansvottun

BYKO hefur fyrst allra framleiðenda í heiminum hlotið Svansvottun á gluggum fyrir íslenskar aðstæður. 

Mikilvægi þess að hafa vandaða glugga í íslenskum byggingum er óumdeilt og þeir verða að standast strangar kröfur um ísetningu og slagregnspróf. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur enda uppi áform um að auka eftirlit með gluggum sem full þörf er á miðað við þann fjölda tjóna sem rekja má til þess að gluggar hafi ekki uppfyllt kröfur um gæði og ísetningu. 

BYKO hefur nú fyrst framleiðenda hlotið Svansvottun á gluggum sem framleiddir eru sérstaklega fyrir íslenskar aðstæður. Markmið Svansins með slíkri vottun er að auka notkun á orkusparandi gluggum og útihurðum sem standast strangar kröfur varðandi efnisnotkun og framleiðsluferli og valda litlum áhrifum á umhverfið.

„Þetta samræmist okkar vegferð í sjálfbærnimálum og með þessu stóra skrefi erum við að senda skýr skilaboð um að BYKO er markvisst að vinna í því að draga úr kolefnisspori sínu,“ segir Sigurður Pálsson forstjóri BYKO og bætir við: „Svanurinn er áreiðanlegt, norrænt umhverfismerki sem allir þekkja og er leiðandi á sínu sviði á heimsvísu. Svansvottunin felur í sér lífsferilsgreiningu og staðfestingu á gæðum vörunnar, m.a. út frá líftímasjónarmiði og áhrifum hennar á umhverfi og heilsu fólks.“

BYKO hefur framleitt glugga og hurðir í 32 ár og þessi viðbót er rökrétt framhald þeirrar stefnu fyrirtækisins að bjóða ávallt bestu mögulegu vöruna á markaðnum á hverjum tíma. Ferlið er búið að vera langt og strangt því uppfylla þurfti fjölmörg skilyrði um efni og aðferðir við framleiðsluna með mælingum á rannsóknarstofu, útreikningum, efnisgreiningum o.fl. 

Svansvottuðu gluggarnir eru virkniprófaðir, þeir hafa langan endingartíma og valda hverfandi loftslagsáhrifum, þökk sé litlu orkutapi. Þeim fylgja nákvæmar leiðbeiningar um meðferð, allt frá afhendingu til notkunar og flokkunar að líftíma þeirra liðnum. Fyrst um sinn mun úrvalið miðast við álklædda timburglugga,  75 mm þykk opnanleg fög og hurðir til að ná því U-gildi sem vottunin krefst.

Svansvottun

Ábyrgðarskilmálar BYKO glugga og hurða - Svanurinn

Förgun glugga

Valmynd