Tugir smáhýsa í Þjórsárdal
Verkefni Bláa Lónsins í Þjórsárdal samanstendur af Fjallaböðunum - sem mun hýsa hótel og baðstað, og svo Gestastofu Þjórsárdals en á svæðinu við Gestastofuna munu smáhýsin rísa. Húsin verða 21 til að byrja með en gert er ráð fyrir að þeim geti fjölgað í allt að 40 síðar. Smáhýsin rísa í skóglendi við Sandá, en á svæðinu verður einnig byggt nýtt tjaldsvæði.
Kaup á 21 smáhýsi
Þann 9. september 2026 var undirritaður samningur á milli BYKO og Bláa Lónsins um kaup á 21 smáhýsi frá BYKO fyrir uppbyggingu Bláa Lónsins í Þjórsárdal.
Húsin koma fullbúin úr verksmiðju BYKO í Lettlandi.
Fullbúin hús, tilbúin til notkunar
Húsin koma fullkláruð til landsins úr verksmiðju okkar í Lettlandi, með innréttingum, hreinlætisaðstöðu og öllum frágangi, tilbúin til uppsetningar. Þetta er lausn sem þarf einungis að tengja við rafmagn og vatn áður en húsin eru tekin í notkun. Allt efni, blöndunartæki, gólfefni og annað kemur úr BYKO. Þetta tryggir gæði, einfaldar viðhald og gerir þjónustu okkar til kaupanda greiðari. Húsin eru sérstaklega hönnuð til að standast íslenskt veðurfar og aðstæður og nýtast því vel allt árið.
Engin tvö hús eru eins
Hvert hús er einstakt og hannað út frá þörfum og óskum hvers viðskiptavinar. Verkefnin eru misjöfn og útfærslurnar líka, hvort sem um er að ræða fjölskyldur, ferðaþjónustu eða gestahús, við finnum lausnina saman.
Í verkefninu fyrir Bláa Lónið voru hannaðar þrjár gerðir húsa, hvert þeirra allt að 62 fermetrar að stærð og öll hönnuð með hágæða upplifun gesta að leiðarljósi.
Metnaðarfull uppbygging í Þjórsárdal
„Við erum afar stolt og þakklát fyrir það traust sem okkur er sýnt með þátttöku okkar í þessari metnaðarfullu uppbyggingu í Þjórsárdal. Það er ánægjulegt að fá að leggja okkar af mörkum til svo spennandi verkefnis,“ segir Sigurður Brynjar Pálsson, forstjóri BYKO.
