Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Lunawood

Við leggjum áherslu á að bjóða upp á umhverfisvænar vörur sem stuðla að aukinni sjálfbærni. Lunawood er PEFC vottað efni sem unnið eru úr trjám sem eiga uppruna sinn úr ábyrgri skógræktun í Finnlandi. Lunawood er unnið úr umhverfisvænni finnskri furu og greni. Hægt er að nota Lunawood bæði innan- sem utandyra og er vottað umhverfisvænt efni.

Lunawood hús

Fullkomið í Sauna

Lunawood Thermowood® er hitameðhöndlað timbur sem er búið að þurrka með sérstakri aðferð, sem tekur mestan raka úr timbrinu. Þetta gerir það að verkum að Lunawood Thermowood® hentar fullkomnlega til notkunar í Saunu þar sem saunur þurfa efni sem þolir mikinn hita og raka án þess að bogna eða springa og án þess að gefa frá sér eiturefni.

Viðhaldsminna pallaefni

Thermowood® frá Lunawood hentar einstaklega vel í sólpalla, enda búið að vinna efnið sérstaklega með endingu og notkun á pöllum í huga. Viðurinn gránar með tímanum ef hann er ekki olíuborinn, en það hefur ekki áhrif á endingu hans. Lunawood Thermowood® nordic pine er úr finnskri furu sem er náttúrulegur og eiturefnafrír viður sem bognar ekki og flísar ekki upp úr, sem er einkar hentugt fyrir pallasmíði.

Lunawood Thermo-D greni inniheldur náttúrulega kvisti og algengt er að hnútar eða sprungur myndist í efninu. Hitameðhöndlunarferlið dregur fram náttúrulega eiginleika viðarins, sem getur gert þessa eiginleika sýnilegri.

Þessar kvistasprungur eru eðlilegar í greni og standast alla gæðastaðla vörunnar.
Mikilvægt er að hafa í huga að þessir hnútar (eða sprungur) eru fyrst og fremst sjónrænn eiginleiki og hafa ekki áhrif á burðarþol né endingu efnisins.

Innan sem utandyra

Vinnslan við Lunawood Thermowood® tryggir langvarandi endingu á viðnum í fjölbreyttum og flóknum útfærslum. Þetta ferli tryggir það að viðurinn hentar íslenskum aðstæðum einstaklega vel. Lunawood Thermowood® kemur einstaklega vel út bæði innan sem utandyra og hefur verið notaður í ótal mörgum spennandi verkefnum erlendis sem og hérlendis. Hægt er að nota sömu prófíla inni sem úti þar sem viðurinn hefur verið hitameðhöndlaður og er því náttúrulega varinn fyrir náttúruöflum.

Lunawood Triple shadow

Hitameðhöndluð fura - Luna-Thermo-D. Búið er að baka efnið upp í 212 gráður og þ.a.l. þurrka upp alla trjákvoðu svo efnið sýgur síður í sig raka og fúnar, ásamt því að vera einstaklega formfast.

Hægt er að nota innandyra sem utan. Ef nota á efnið utandyra þarf að meðhöndla það með viðarvörn og fara eftir uppsetningarleiðbeiningum, það er sitthvor aðferðin fyrir innandyra eða utandyra.

Helstu eiginleikar

Hitameðhöndlað Luna-Thermo-D, ljósbrúnn viður eftir meðhöndlun. Engin efnanotkun er við framleiðslu, einungis hitun á timbri eða upp í 212°C. Þetta eykur endingartíma viðarins mjög, eða í endingaflokk Class 2 skv. EN 350. Vegna meðhöndlunarinnar eru formbreytingar minni. Yfirborðsviðhald er valkvætt.

Efnið hentar bæði utan- og innanhúss, en notkunarflokkur er Class 3 skv. EN 335. Það þýðir ofanjarðar en ekki til notkunar í jörðu. Kjörið í spa og sánaklefa.

PEFC upprunavottun er á efninu.

Viðhald og umhirða

Lunawood Thermowood® klæðning og pallaefni þarfnast lítils viðhalds. Sé viðurinn ekki yfirborðsmeðhöndlaður gránar hann smám saman vegna sólarljóss og veðrunar. Gránunin er náttúruleg og hefur hvorki áhrif á stöðugleika viðarins né fúaþol hans.

Almennt viðhald: Burstið laus óhreinindi af og þvoið yfirborðið með vatni og mjúkum bursta eftir þörfum. Hafi viðurinn verið olíuborinn eða yfirborðsmeðhöndlaður skal fylgja leiðbeiningum framleiðanda efnisins.

Pallar á veturna: Ekki er mælt með salti eða sandi til hálkuvarna á pallinum þar sem það getur skemmt hann. Notið tré- eða gúmmískóflu frekar en málmskóflu við snjómokstur til að forðast rispur og skemmdir á yfirborðinu.

Brúni liturinn varðveittur: Til að halda upprunalega brúna litnum og verja yfirborðið gegn útfjólublárri geislun þarf að bera reglulega á viðinn litaða viðarolíu sem hentar hitameðhöndluðum viði. Á klæðningu má einnig nota viðarvörn eða málningu. Ekki er mælt með línolíu þar sem hún getur ýtt undir sveppavöxt.

Blettir og sprungur: Óhreinindi í lofti, svo sem sót, frjókorn og málmryk, geta valdið litlum svörtum blettum á yfirborðinu. Á ómeðhöndluðum viði renna blettirnir með tímanum saman við gráa litinn, en þvo þarf yfirborðið til að fjarlægja orsök þeirra. Á olíubornum eða yfirborðsmeðhöndluðum viði er mælt með þvotti og nýrri umferð. Hársprungur geta myndast við veðrun en þær hafa ekki áhrif á endingu efnisins.

Ítarlegri leiðbeiningar frá Lunawood (á ensku), bæði fyrir klæðningu og pallaefni, má nálgast undir Skjöl neðst á síðunni.

Fjölbreytt úrval

Hér eru þær fjölbreyttu útfærslur sem við bjóðum upp á frá Lunawood.

PEFC upprunavottorð

Uppsetningarleiðbeiningar

Viðhald og umhirða Lunawood klæðningar (EN)

Viðhald og umhirða Lunawood pallaefnis (EN)

Valmynd