Um húsin
Rammahús BYKO eru hönnuð með tilliti til íslenskra aðstæðna og í samræmi við íslenska byggingareglugerð. Hönnuður þeirra er Magnús H. Ólafsson arkitekt, FAÍ, hjá Markstofu ehf., mjög reyndur hönnuður á sviði verksmiðjuframleiddra húsa.
Forsniðnar grindur Rammahúsa eru framleiddar hjá BYKO LAT í Lettlandi. Allt efni sem BYKO LAT notar við framleiðslu í húsagrindur Rammahúsa er gæðavottað samkvæmt íslenskum og evrópskum stöðlum.
Rammahús BYKO eru byggð upp úr forsniðnu efni sem sett er saman á verkstað, allar festingar sýnilegar.
Heilsárshús, sumarhús og gistihús
Innifalið í efnispökkum BYKO er gerð aðalteikninga, skráningartöflu, sérteikninga og burðarþolsteikninga að því gefnu að fyrir liggi samþykkt deiliskipulag eða ígildi þess ásamt afstöðumynd til notkunar við gerð aðalteikninga. Raflagna- og pípulagnateikningar eru ekki innifaldar.
Þegar viðskiptavinur hefur skilað inn afstöðumynd af lóð og ósk um stærð húss og nýtingu þess, mun arkitekt koma með tillögu, í samráði við viðskiptavin, sem rúmast innan ákvæða deiliskipulags. Endurskoðun á upphaflegu tillögunni er innifalin í verði. Semja þarf þó sérstaklega um vinnu vegna umfangsmikillar hönnunar að mati arkitekts.
Nánari upplýsingar veita sölumenn timburversluna BYKO í síma 515-4000.
