Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Timburgluggar, álkæddir timburgluggar og hurðir

BYKO býður uppá fjölmargar útfærslur viðarglugga, gæðavottaðra álklæddra timburglugga og timburhurða, allt eftir þörfum viðskiptavina og veitir starfsfólk okkar ráðgjöf og upplýsingar vegna hönnunar og útfærslu sem henta hverjum og einum.

Hafa samband

Álgluggar í fjölbýlishúsi í Bæjarlind
Hvítur timburgluggi með fallegu útsýni
Bárujárnsklætt einbýlishús með timburgluggum
Timburgluggar

BYKO býður uppá fjölmargar útfærslur af timburgluggum.

Gluggarnir eru framleiddir í verksmiðju BYKO í Lettlandi og eru CE merktir og slagregnsprófaðir reglulega á viðurkenndri rannsóknastofu og eru með vottað slagregnspróf uppá 2700pa sem er langt yfir því sem byggingareglugerð gerir kröfu um.

Gluggarnir eru fúavarðir og yfirborðsmeðhöndlaðir með viðurkenndu og vönduðu akrýlþekjandi málningarkerfi, gluggarnir eru standard í hvítu (RAL 9010) en hægt er að velja flest alla liti úr RAL litakerfinu.

Hægt er að fá gluggana án yfirborðsmeðhöndlunar en þá er það á ábyrgð kaupanda að verja viðinn strax gegn veðri og vindum.

Blokk í Reykjavík með BYKO gluggum
Horngluggar úr timbri í fjölbýlishúsi
Gluggar í álklæddu fjölbýlishúsi
Álklæddir timburgluggar

BYKO býður einnig upp á álklædda timburglugga  sem uppfylla sömu skilyrði og timburgluggarnir. Þeir koma með karm og fög úr límtrésfuru og bjóða þann kost að velja mismunandi lit (RAL) að innan og utan án viðbótarkostnaðar.

Almennt um gæði BYKO gluggans:

BYKO glugginn er  prófaður reglulega í okkar eigin slagregnsskáp, rakainnihald viðarins sem við notum er stöðugt kannað og fylgst er með loftrakastýringu í framleiðslunni.

BYKO glugginn hefur farið í gegnum talsverðar endurnýjun á síðustu misserum til að mæta strangari kröfum er lúta að til að mynda:

Hærra einangrunargildi, mæta hærri kröfum hljóðvarnir, ásamt því að hafa staðist eitt hæsta slagregnspróf sem hefur verið gert á gluggum í Evrópu.
BYKO glugginn stóðst með sóma 2700pa slagregnspróf sem er langt umfram það sem byggingareglugerð gerir kröfu um sem er 1100pa.

Álklæddir viðargluggar í fjölbýlishúsi í Reykjavík
Álklæddir viðargluggar í ýmsum stærðum
Álklæddir gluggar í dökkum karmi frá BYKO
Gluggar í mismunandi stærðum
Við bjóðum upp á fullglerjaða og málaða gæðaglugga með fimm ára ábyrgð

Í gluggana frá okkur er hægt að velja um mismunandi tegundir glerja. Staðlað gler í BYKO gluggum er háeinangrandi og hefur meðal U-gildi 1,1 - 1,3. Við bjóðum val um sólvarnargler, öryggisgler, matt gler eða hljóðeinangrandi gler.

Karmstykki og innanverða pósta er hægt að fá með beinum prófíl eða skrautfræsingu. Allar brúnir koma rúnaðar sem dregur úr hættu á skemmdum við flutning og ísetningu ásamt því að við málun myndast heil filma sem slitnar ekki á skörpum brúnum.

Gluggarnir koma með álundirlista en hönnun hans miðar að því að halda fölsum þurrum og góðri loftun við glerið. Lárétt föls eru hallandi til að vatn safnist ekki fyrir í þeim.

Timburhurðir

BYKO framleiðir fjölmargar gerðir af hurðum í margvíslegum útfærslum úr Oregon pine eða samlímdri furu. Starfsfólk okkar veitir ráðgjöf og upplýsingar vegna hönnunar og útfærslu sem henta hverjum og einum.

Einnig framleiðir BYKO hurðir úr eik.

Smelltu hér til að skoða leiðbeiningar við byggingareglugerðir hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun.

Þriggja punkta læsingar veita ekki einungis meira öryggi heldur eru þær þéttari en hefðbundnar eins punkta læsingar.

Allar innopnanlegar hurðir BYKO eru með þriggja punkta læsingu sem staðalbúnað, en þriggja punkta læsing er mikill kostur. Með henni færðu þrjár læsingar, eina uppi, eina í miðjunni og eina niðri.

Auk staðlaðra og fyrirfram hannaðra hurða BYKO sérsmíðum við einnig hurðir eftir óskum og þörfum hvers og eins.

Umfjöllun Skreytum hús um útihurð (opnast í nýjum glugga)

Útihurð úr timbri með þriggja punkta læsingu
Valmynd