Hvað viltu finna hér?

Karfan þín er tóm

Innskráning
Sláðu inn símanúmer
Sláðu inn kennitölu

Auka BYKO Krónur í sumar

Frá 1. maí til 31. ágúst 2026 geta BYKO PLÚS félagar safnað sér auka BYKO Krónum með því að ná ákveðnum veltumörkum á tímabilinu. Öll velta á tímabilinu telur með, óháð því hvort vörur voru keyptar á fullu verði, á tilboði eða með afslætti.

Þegar samanlögð velta félaga nær 1.000.000 kr. fær viðkomandi 50.000 auka BYKO Krónur við næstu mánaðamót eftir að veltumarkinu hefur verið náð.

Haldi félagi áfram að versla og nái 1.500.000 kr. í heildarveltu á sama tímabili fær hann 25.000 auka BYKO Krónur til viðbótar. Við 2.000.000 kr. veltu bætast svo aftur við 25.000 BYKO Krónur. Að hámarki getur hver félagi því fengið 100.000 auka BYKO Krónur á átakstímabilinu.

Skilmálar í stuttu máli

Auka BYKO Krónur eru gefnar út við mánaðamót og birtast á aðgangi félaga. Til að nýta þær þarf félagi sjálfur að skrá sig inn á MITT BYKO á byko.is og velja hvernig hann vill ráðstafa þeim. Hægt er að breyta BYKO Krónum í Vildarpunkta Icelandair eða velja gjafabréf hjá BYKO.

Aðeins félagar í BYKO PLÚS geta fengið auka BYKO Krónur.
Átakstímabil er frá 1. maí til 31. ágúst 2026.
Tilboðs- og afsláttarvörur telja með í veltu.
Velta safnast saman yfir allt tímabilið.
Auka BYKO Krónur eru greiddar út við mánaðamót eftir að veltumörkum er náð.
Hámarksávinningur á tímabilinu er 100.000 BYKO Krónur á hvern félaga.
Þín velta gildir frá þeim degi sem þú skráir þig í BYKO PLÚS, ef þú skráir þig eftir 1. maí.
Valmynd