Pallaráðgjöf Akureyri
Svanfríður Hallgrímsdóttir landslagsráðgjafi veitir viðskiptavinum ráðgjöf um framkvæmdir í garðinum. Tilgangur ráðgjafarinnar er að auðvelda fólki útfærslur á palli og girðingum með efni og vörum frá BYKO.
Svanfríður verður stödd hjá BYKO Akureyri dagana 3.-5. apríl.
Bóka tíma í ráðgjöf
Svanfríður Hallgrímsdóttir landslagsráðgjafi veitir viðskiptavinum ráðgjöf um framkvæmdir í garðinum. Tíminn kostar 14.995 kr. og þú færð þá upphæð til baka í formi inneignar upp í pallaefni hjá BYKO.
Innifalið er: 45 mínútna viðtal við Svanfríði
Útlitsmyndir af hönnuninni eru sendar samdægurs. Endanleg hugmyndabók með þrívíðum teikningum ásamt málsetningum sendar u.þ.b. 7 virka dögum eftir ráðgjöf.
Þegar þú hefur pantað tíma í ráðgjöf biðjum við þig að senda myndir og önnur gögn á pallaradgjof@byko.is.
- 1:100 málsett grunnmynd af húsi
- 1:500 málsett afstöðumynd
- Önnur viðeigandi gögn.
Til þess að tími með pallaráðgjafa nýtist sem best þarf að senda inn eftirfarandi gögn og fylla út neðangreint form minnst 2 dögum fyrir tímann.
Byggingarnefndarteikningar af húsi og lóð, grunnmynd, útlit og afstöðumynd. Þessar teikningar má finna á vef viðkomandi sveitarfélags t.d.
• Reykjavík: http://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/
• Kópavogur: https://www.map.is/kopavogur/?teikningar
• Hafnarfjörður: https://www.map.is/hafnarfjordur/
• Seltjarnarnes: https://www.map.is/seltjarnarnes/
• Mosfellsbær: https://www.map.is/moso/?teikningar
Ljósmyndir sem sýna lóð og hús, sérstaklega svæðið sem á að hanna.Stuttan lista yfir helstu óskir (t.d. heitan pott, geymslu, grill, bekki, skjólgirðingar, gosbrunn o.s.frv.).
Um er að ræða 30 mín. ráðgjöf og nýtist tími þinn best ef þú veist hvaða svæði í garðinum þú vilt leggja áherslu á.
Tíminn fer fram á Teams eða í verslun BYKO Breidd (í innréttingadeild innst í verslun) þar sem hönnuður deilir sínum skjá. Ef ráðgjöfin fer fram á Teams er best að vera á borðtölvu, ekki síma.
Dreymir þig um að byggja sólpall? Sláðu inn stærð pallsins, veldu þér tegund klæðningar og hvort þú vilt reikna með efni í undirstöður. Í pallareiknivélinni getur þú áætlað efniskostnað við nýja pallinn þinn af töluverðri nákvæmni. Þó að sólpallurinn hafi óreglulega lögun gefur fermetratalan nokkuð rétta niðurstöðu.
Opna reiknivél
Skemmuvegi 2a
200 Kópavogur
Kt. 460169-3219
Vsk.nr. 03394